- Advertisement -

„Hafa viðlíka svik sést áður í sögu verkalýðsbaráttu á þessu landi?“

„Ég myndi segja þessu fólki að skammast sín en ég held að þau kunni það ekki. En skömm þeirra er sannarlega mikil og mun aldrei gleymast.“

Sólveig Anna.

„Þetta hlýtur að vera eitthvað met í lágkúru: Í staðinn fyrir að styðja Eflingu, félag í harðri kjaradeilu, félag sem tilheyrir Starfsgreinasambandinu og er þar langstærst, ræðst forysta SGS í örvæntingu sinni yfir því að Efling nái betri samning að okkur við hvert tækifæri með sífellt yfirgengilegri málflutningi. Og nú er forystan komin í sýndar-viðræður við SA í stað þess að setja þar pressu á um að samið verði samstundis við Eflingu! Hverskonar fólk gerir svona?“

Þannig skrifar Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.

„Hafa viðlíka svik sést í sögu verkalýðsbaráttu á þessu landi? Ég spyr í fullri alvöru. Og er ekki tímabært að forysta SGS láti kjósa um það að Efling sé einfaldlega rekin úr sambandinu í stað þess að halda áfram að féfletta félagið og verkafólk höfuðborgarsvæðins, meðlimi Eflingar? Er það ekki hreinlegra en þetta sjúka framferði sem við verðum nú vitni að? Getur þetta fólk í alvöru réttlætt fyrir sér að taka við fjármunum verkafólks höfuðborgarsvæðisins til að borga undir þá ömurð sem við þurfum að horfa upp á?

Ég myndi segja þessu fólki að skammast sín en ég held að þau kunni það ekki. En skömm þeirra er sannarlega mikil og mun aldrei gleymast.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: