- Advertisement -

Sólveig Anna skrifar Katrínu bréf

Sólveig Anna Jónsdóttir:

Í gær var rætt við forsætisráðherra í fjölmiðlum um það sem nú er vinsælt að kalla deilu/r Eflingar. Þar talaði hún afdráttarlaust fyrir miðlunartillögu ríkissáttasemjara og sagði m.a.: „Ég er ekki til þess fallin að meta nálvæmlega lögmæti hennar en eins og málið horfir fyrir mér og þeim sérfæðingum sem ég hef ráðfært mig við þá stenst hún skoðun“.

Ég ákvað að rita forsætisráðherra bréf eftir að hafa hlustað á hana. Þar segi ég að það sé hvorki mér né öðru Eflingar-fólki kappsmál að standa í „öllum þessum kærumálum“. En að við munum auðvitað svara fyrir okkur þegar að okkur og lögvörðum og lýðræðislegum réttindum okkar er ráðist.

Ég óska jafnframt eftir því að forsætisráðherra deili með mér og félögum mínum þeirri ráðgjöf sem hún segist hafa fengið frá sérfræðingum um að miðlunartillaga ríkissáttasemjara sé lögleg.

Ég segi einnig að ég voni að hún skilji „mikilvægi þess að láglaunafólki sem að leggur allt sitt undir í baráttunni fyrir betra lífi sé ekki sagt af forsætisráðherra að barátta þeirra sé ólögleg, að minnsta kosti ef að það reynist ekki vera rétt eða byggt á traustri eða vandaðri ráðgjöf.“

Að lokum segi ég að ég og þeir sérfræðingar sem ég hef ráðfært mig við séum tilbúin til fundar við forsætisráðherra hvenær sem er til að upplýsa um málið og til að tryggja að almenningur fái réttar upplýsingar um það.

Forsætisráðherra hefur ekki svarað bréfi mínu enn sem komið er.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: