- Advertisement -

Af óþoli Davíðs gagnvart Sólveigu Önnu

Um að hvað er verið að biðja. Er verið að óska eftir að ríkisstjórnin taki Eflingu yfir? Hvert er sú þjóðfélagsmynd sótt? Í hvaða kolli kveiknaði hún?

-sme

Davíð hefur aldrei dregið dul á hvaða hug hann ber til Sólveigar Önnu og þá um leið til Eflingar. Óþolið á sér eflaust rætur í því að nú hefur enginn maður og ekkert fyrirbæri þetta stóra og öfluga félag í vasanum. Efling er svo sannarlega risin upp. Mörgum mislíkar staða Eflingar í dag. Leiðari Moggans er um Eflingu og einkum Sólveigu Önnu. Hér á eftir fara lokakaflar leiðarans:

„Tals­máti for­manns Efl­ing­ar úr forneskju sov­ét­tím­ans og stétta­bar­áttu eft­ir kenni­setn­ing­um Karls Marx sker sig mjög frá flest­um ef ekki öll­um sem starfa í verka­lýðshreyf­ing­unni. Það er helst inn­an Sósí­al­ista­flokks­ins sem finna má slíkt tal og verður það ekki viðkunn­an­legra af þeim sök­um. Aug­ljóst er að ætl­un for­manns Efl­ing­ar er að beita fé­lag­inu enn frek­ar í þeim til­gangi að vinna að breyttu þjóðfé­lags­skipu­lagi, sem sagt að þjóðfé­lags­skipu­lagi sósí­al­ism­ans. Og til að þetta megi verða á Efl­ing ekki að snú­ast um bætt kjör fé­lags­manna, enda sýndi það sig í ný­af­staðinni kjara­bar­áttu að sá var ekki til­gang­ur­inn. Efl­ing á aðeins að vera tæki í hönd­um for­manns­ins til að ná öðrum mark­miðum.“

Vont er að átta sig hvort ritstjórinn skrifi þetta út frá eigin hugsunum eða til að ganga í augun á einhvejrum. Þetta er svo mikið lifandis bull. Leiðarinn endar svona:

…þá er það slík mis­notk­un…

„Þessi mis­notk­un á verka­lýðsfé­lag­inu er al­var­legt mál. Verka­lýðsfé­lög hafa ákveðinn til­gang og njóta ákveðinna rétt­inda af þeim sök­um, til að mynda að geta boðað til verk­falla. Séu verk­föll­in ekki boðuð í þeim til­gangi að bæta kjör fé­lags­manna held­ur ein­göngu til að bylta þjóðfé­lags­skipu­lag­inu, þá er það slík mis­notk­un að hvorki stjórn­völd né al­menn­ing­ur geta látið sér það í léttu rúmi liggja.“

Um að hvað er verið að biðja. Er verið að óska eftir að ríkisstjórnin taki Eflingu yfir? Hvert er þessi þjóðfélagsmynd sótt? Í hvaða kolli kveiknaði hún?

Sá sem hugsar svona er ekki alveg með þetta á hreinu. Hefur samt verið forsætisráðherra lengur en aðrir.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: