- Advertisement -

Í þeim drykk er ekkert kolvetni

Við erum sjálf búin til úr þessari orku vegna þess að öll efnaorka sem við neytum, sem er þá matur og annað slíkt, kemur frá sólinni.

Jón Pétur Zimsen í þingræðu í málþófi.

„Herra forseti: Orka er undirstaða alls. Í fiskinum okkar sem við veiðum er mikil orka. Án orku gætum við ekki starfað. En við misskiljum stundum orku og mig langar í því samhengi að nefna svokallaða orkudrykki. Hér hafa verið nefndir drykkir sem eru með fiskkollageni í sér eins og Collab og aðrir drykkir, eins og Nocco. Nocco stendur fyrir ekkert kolvetni, „no carbs“, með leyfi forseta. Það þýðir það að í þeim drykk er ekkert kolvetni. Kolvetni er eitt orð, nánast, yfir orku þannig að báðir þessir drykkir, Collab og Nocco, eru svo gott sem orkulausir, innihalda svo gott sem enga orku en eru kallaður orkudrykkir. Hvers vegna í ósköpunum eru þeir kallaðir orkudrykkir? Það er vegna þess að menn fara ekki rétt með eðlisfræðihugtök,“ Jón Pétur Zimsen í þingræðu um veiðigjöldin.

Ræðan er kannski dæmigerð fyrir langlokur í málþófi.

Fylgjum Jóni Pétri áfram:

Ég veita Ölgerðin er að vinna með þetta.

„Ef þú neytir orku þá geturðu nýtt orkuna til að losa um hana í hvatberum frumnanna. Þetta þekkja nú þeir sem eru í líffræði. En í raun ættu þessir drykkir að heita örvandi drykkir vegna þess að það er örvandi efni í þeim sem er koffín, ekki orka. En þetta nú var smá útúrdúr. Collab er náttúrlega unnið — það er kollagen úr fiskum sem er notað í það. Mig langar að nefna það líka að þeir sem drekka töluvert af þessum drykk þekkja það, og það gerðist hér í hliðarherbergi áðan að — ég ætla nú ekki að nefna nafnið á háttvirtum þingmanni en hann varð til þess að háttvirtur þingmaður opnaði drykk og það frussaðist yfir hana alla og hún þurfti að hafa fataskipti vegna þess að hún var gegndrepa í Collab. Það er kollagenið í drykknum sem leysir út koltvísýruna — þetta er ekki kolsýra því að kolsýra er í jöfnunni CO en það sem við drekkum heitir koltvísýra. Það er gosið. Það er gosið sem er í drykkjunum. Kollagenið í Collabinu — ég get ekki fullyrt það 100% en ég er mjög nálægt því að fullyrða að það er það sem veldur því að koltvísýran helst ekki uppleyst í vökvanum eins og hún á að gera heldur verður til ákveðinn hvati með þessu sem leysir koltvísýruna upp og veldur þessum yfirþrýstingi sem veldur því síðan að Collab-ið gýs. Ég veita Ölgerðin er að vinna með þetta. Þetta er í alvöru þannig að Ölgerðin er að vinna með þetta til að koma í veg fyrir þetta gos í upphafi.“

Jón Pétur átti margt eftir ósagt:

Þetta er í raun allt komið frá sólstjörnum.

„En aftur þá að nýsköpun í sjávarútvegi og hvernig orka nýtist okkur þar. Við verðum að átta okkur á því að grunnur langflestar orku sem við notum er sólarljós í gegnum ljóstillífun. En hvaðan kemur orkan úr sólinni? Hvað er það? Það er okkar grunnorka. Við erum sjálf búin til úr þessari orku vegna þess að öll efnaorka sem við neytum, sem er þá matur og annað slíkt, kemur frá sólinni. Ég næ ekki að klára að útlista það hvernig sú orka verður til í sólinni en ég ætla að byrja á því fyrir þá sem eru að horfa núna og klukkan er orðin fjögur, þeir þekkja það jafnvel, þetta er mjög þekkt jafna sem Albert Einstein kom með, sem er E=mc2 og á íslensku er þetta orka jafnt og massi, sinnum ljóshraði í öðru veldi. Fyrir þá sem vita ekki hvaða ljóshraði er þá er það 300 milljónir metra á sekúndu. Það þýðir að ljósið ferðast með þessum hraða 300 milljón metra á hverri einustu sekúndu. Svo er það reiknað hvað ljósið er lengi að berast frá sólinni til jarðarinnar og þá vitum við hvað það er langt vegna þess að það tekur u.þ.b. sex mínútur fyrir ljósið að ferðast frá sólinni til jarðarinnar þannig að það þýðir það að það er sex ljósmínútur að koma hingað,“ sagði Jón Pétur á næturfundi í Alþingi, í málþófi.

Það er ekki mikið eftir af ræðunni hans Jóns Péturs. Hér kemur niðurlagið:

„Ég mun halda aðeins áfram með þetta því að það skiptir máli að við áttum okkur á því að við erum ekki einhvern veginn í tómarúmi með fiskimiðin og orkuna sem felst í fisknum. Þetta er í raun allt komið frá sólstjörnum sem eru allt annað heldur en plánetur því að að sólstjörnur framleiða ljós en plánetur endurvarpa ljósi. — Ég á eftir að klára þetta og bið um að hæstvirtur forseti setji mig aftur á mælendaskrá.“

Þetta var ræða um veiðigjaldið.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: