
„Það var vitanlega hvorki ávarpað í spurningu þingmannsins né svarinu ráðherrans hversu stórt hlutfall þessara erlendu fanga lenti í fangelsi fyrir einmitt bara það, að vera erlendir. Miðað við stefnu ríkisstjórnarinnar á síðustu 5 árum kemur þessi aukning ekki á óvart. Stjórnvöld finna sér sífellt fleiri ástæður til þess að fangelsa fólk sem hefur ekkert unnið sér til sakar annað en það að vera,“ skrifaði Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir fyrrum þingkona Pirata.