- Advertisement -

„Ellefu milljarðar á ári í aukna skatta og gjöld af akstri og ökutækjum“

„Fjárlagafrumvarpið eins og það liggur fyrir núna er vonbrigði. Það er verðbólguhvetjandi en ekki -letjandi. Útgjaldavöxturinn á milli ára er alveg galinn. Það er rúmlega tvöföldun á milli ára. Þetta verður ríkisstjórnin að taka til sín og bregðast við með tillögum eftir vinnu nefndar sem raunverulega skila einhverju aðhaldi og sparnaði í ríkisrekstri. Við verðum að fara miklu betur með þá fjármuni sem við tökum af fólki og fyrirtækjum,“ sagði Bergþór Ólason Miðflokki á Alþingi.

Fyrr í ræðu sinni sagði Bergþór:

„Mig langar að koma stuttlega inn á gjaldtöku á akstur og ökutæki. Ég spurði hæstvirtan fjármálaráðherra í andsvari hér áðan og fékk ekki svar en heildartekjur af akstri og ökutækjum verða 83 milljarðar á næsta ári, 83.000 milljónir. Hækkunin á milli ára, af því ég spurði hæstv. ráðherra en fékk ekki svar, er 11 milljarðar í aukna gjaldtöku á akstur og ökutæki. Það segir hér í töflu 4.2 á bls. 121: Annars vegar er það kílómetragjald vegna notkunar bifreiða upp á 3,3 milljarða og endurskoðun á skattlagningu ökutækja og eldsneytis upp á 7,5 milljarða. Í ljósi þess að hæstv. ráðherra situr hér í salnum og er í fullum færum til að koma í andsvar kjósi hann svo, eða eftir atvikum í ræðu síðar sem fer yfir þetta, þá langar mig að biðja hæstv. ráðherra að útskýra með nákvæmari hætti hvernig þessi tæplega 11 milljarða hækkun birtist og kemur fram, því þetta er gríðarleg skattahækkun á akstur og ökutæki í landinu. Þetta mun bitna mest á þeim hlutfallslega sem hafa lægstar tekjurnar. Það er þannig. Ég bara skil ekki að Flokkur fólksins til að mynda gúteri þessa nálgun hvað varðar skattlagningu á akstur og ökutæki. Það verður að gera okkur þingmönnum mögulegt að glöggva okkur betur á þessari stöðu því þetta er slík breyting á milli ára. Það má ekki gleyma því að því var flaggað hér áður að kílómetragjaldið yrði bara kerfisbreyting, á núlli, það yrði ekki viðbótargjaldtaka á almenning og fyrirtæki vegna þess. Nú er allt önnur mynd að birtast, 11 milljarðar á ári í aukna skatta og gjöld af akstri og ökutækjum.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: