Við munum ekki verða klappstýrur…
„Það er með ólíkindum að forsætisráðherra kalli metútgjöld ríkissjóðs tiltekt. Raunveruleikinn er hefðbundinn vinstri grautur; verðbólga og vextir í hæstu hæðum. Aðstoðarmönnum, PR-fulltrúum og öðrum ráðgjöfum er bætt við í ráðuneytin á meðan almenningur má bíða eftir vaxtalækkunum. Báknið stækkar og eina málið sem ríkisstjórnarflokkarnir lofuðu að yrði sett til hliðar er komið fremst á dagskrá með tilheyrandi kostnaði: Undirbúningur fyrir aðlögunarviðræður að Evrópusambandinu. Forsætisráðherra heldur reyndar áfram að fela vegferðina en utanríkisráðherra kemur jafnharðan og minnir á hana,“ sagði Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir Miðflokki, í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra.
„Við í Miðflokknum munum áfram styðja góð mál en berjast gegn slæmum málum. Við munum ekki verða klappstýrur fyrir þessa ríkisstjórn heldur veita aðhald og standa vörð um lýðræðið, velferðarkerfið og þau gildi sem Ísland byggir á. Vöndum okkur. Við erum að taka ákvarðanir um framtíð Íslands og hvernig samfélag við viljum byggja fyrir komandi kynslóðir,“ sagði Nanna Margrét í lok ræðu sinnar.