„BSRB krefst þess að öll þessi áform verði dregin til baka og að stuðlað verði að friði á vinnumarkaði.“
Eftir að ríkisstjórnin lagði fjárlagafrumvarpið fram hafa risið upp óánægju öldur hér og þar. Skoðum sendibréf frá BSRB:
„Stjórn BSRB fordæmir harðlega áform ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur um að skerða lögbundin réttindi starfsfólks sem starfar í almannaþjónustu.
Afnám áminningarskyldu án samráðs
Skerðing á rétt launafólks til atvinnuleysistrygginga
Afnám jöfnunarframlags til lífeyrissjóða
Í stað þess að bæta kjör og aðstæður starfsfólks sem vinnur í krefjandi störfum í heilbrigðis-, félags- og menntakerfinu, hyggst ríkisstjórnin ganga á grundvallarréttindi launafólks.
BSRB krefst þess að öll þessi áform verði dregin til baka og að stuðlað verði að friði á vinnumarkaði.“