- Advertisement -

Njáll Trausti leitar til þingforseta í von um að Daði Már fjármálaráðherra svari

Það virðist sem hluti nýrra fjárheimilda sem ætlaður er til að bæta þjónustu hafi leitt til launahækkana umfram forsendur fjárlaga án þess að Alþingi hafi tekið slíka ákvörðun.

Njáll Trausti Friðbertsson.

Alþingi: „Ég leita til frú forseta um smá aðstoð, leita liðsinnis. Nú er tímafrestur um skýrslubeiðni til hæstvirts fjármála- og efnahagsráðherra um launaþróun hjá hinu opinbera löngu liðinn. Hérna er óskað eftir liðsinni virðulegs forseta um að skýrslan skili sér hið fyrsta. Skýrslubeiðnin var fyrst lögð fram á síðasta löggjafarþingi, nánar tiltekið 20. júní í fyrra, fyrir tæpum átta mánuðum. Beiðnin var endurflutt á ný í haust, um mánaðamótin september/október,“ sagði Njáll Trausti Friðbertsson Sjalfstæðisflokki.

Njáll Trausti hélt áfram:

Sérstaklega er mikilvægt að kanna hvor…

„Í greinargerð með skýrslubeiðninni kemur fram að markmið skýrslubeiðninnar, sem er mjög mikilvægt, sé að varpa ljósi á launaþróun hjá hinu opinbera á undanförnum tíu árum og greina hvernig samband er á milli fjárlagaforsendna, fjárheimilda og raunverulegra launaútgjalda hjá hinu opinbera. Sérstaklega er mikilvægt að kanna hvort og þá hvernig forstöðumenn ríkisstofnana hafa haft svigrúm til að semja um launahækkanir umfram þær forsendur sem lagðar voru til grundvallar í fjárlögum hvers árs. Mikilvægt er að greina hversu stór hluti nýrra fjárheimilda ríkisaðila hefur runnið í launahækkanir fremur en til eflingar þjónustu eða nýrra verkefna og mun umbeðin skýrsla vonandi veita betri innsýn í það. Það virðist sem hluti nýrra fjárheimilda sem ætlaður er til að bæta þjónustu hafi leitt til launahækkana umfram forsendur fjárlaga án þess að Alþingi hafi tekið slíka ákvörðun. Því þarf að greina í hversu miklum mæli það hefur leitt til hærri ríkisútgjalda án þess að leiða til betri eða nýrrar þjónustu.“

„Flutningsmenn bera vonir til þess að umbeðin skýrsla geri Alþingi betur kleift að sinna eftirlitshlutverki sínu og stemma stigu við launaskriði hjá hinu opinbera sem hefur átt sér stað án aðkomu Alþingis, án ávinnings fyrir borgarana og með skaðlegum áhrifum á verðbólgu og efnahagslegan stöðugleika. — Ég hef lokið málinu mínu, frú forseti,“ þannig endaði Njáll Trausti ræðu sína.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: