- Advertisement -

Stóru útgerðirnar væla út afslátt af hafnargjöldum – og fá

„Staða sjávarútvegssveitarfélaga er ekki sterk þegar verið er að semja við þá stóru sem sýna með þessu vísi að grútarskap á sama tíma og fyrirtækin skila methagnaði.“

Stjórnmál: Sigurjón Þórðarson, alþingismaður og formaður fjárlaganefndar Alþingis, skrifaði:

„Ef farið er yfir raunveruleg dæmi hvaða áhrif lágt verð á loðnu hefur á fjárhagsstöð hafnarsjóðs í sjávarþorpi þar sem endar ná vart saman, þá sést að byggðalagið varð af tugmilljóna króna tekjum nú í byrjun ársins.

Á vertíðinni hefur verið landað um 11 þúsund tonnum af loðnu í byggðalaginu og má leiða að því líkum að því miðað við að hafnargjöldin séu 1,4% af „aflaverðmæti“ þá gefur það ríflega 11 milljónir króna tekjur fyrir höfnina. Aflagjöldin væru hins vegar 20 milljónum króna hærri ef verðið væri eitthvað í átt við það sem greitt er fyrir fiskinn í Færeyjum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

…að reikna út heildartapið…

Annað sem er áhugavert er að stóru sjávarútvegsfyrirtækin hafa verið að þrýsta á sjávarútvegssveitarfélögin að gefa afslætti af hafnargjöldum sem alla jafna eru í kringum 1,7% af aflaverðmæti. Staða sjávarútvegssveitarfélaga er ekki sterk þegar verið er að semja við þá stóru sem sýna með þessu vísi að grútarskap á sama tíma og fyrirtækin skila methagnaði.

Ætla má að umrædd hafnargjöld af 11 þús. tonnum séu um einn fimmtándi af öllum hafnargjöldum loðnuvertíðarinnar þannig að auðvelt er að reikna út heildartapið á hafnarsjóðum landsins. Það tap er lítið í samanborið við hvaða áhrif verðlagningin hefur á útsvar og skatttekjur ríkisins.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: