- Advertisement -

Reyndi að þjóðnýta olíuna í Íran

Umræðan: Svanur Gísli Þorkelsson skrifaði:

Aðal ástæða valdaránsins var ákvörðun Mosaddeghs árið 1951 um að þjóðnýta íranska olíuiðnaðinn, sem áður hafði verið undir stjórn breska fyrirtækisins Anglo-Iranian Oil Company (nú BP).

„Árið 1953 var framið valdarán í Íran þar sem hinum lýðræðislega kjörna forsætisráðherra landsins, Mohammad Mosaddegh, var steypt af stóli. Aðgerðin var skipulögð af leyniþjónustum Bandaríkjanna (CIA) og Bretlands (MI6) og bar heitið Operation Ajax. Bandaríska leyniþjónustan CIA viðurkenndi opinberlega þátt sinn í valdaráninu árið 2013 þegar leynd var létt af skjölum varðandi þessa atburði.

Aðal ástæða valdaránsins var ákvörðun Mosaddeghs árið 1951 um að þjóðnýta íranska olíuiðnaðinn, sem áður hafði verið undir stjórn breska fyrirtækisins Anglo-Iranian Oil Company (nú BP).

Leyniþjónusturnar beittu áróðri, mútum og skipulögðum mótmælum til að skapa óstöðugleika í landinu. Eftir að Mosaddegh var hrakinn frá völdum 19. ágúst 1953, snéri Mohammad Reza Pahlavi Íranskeisari aftur úr stuttri útlegð og tók við einræðisvaldi með stuðningi Vesturveldanna. Valdaránið batt enda á lýðræðisþróun í Íran og keisarinn ríkti með harðri hendi næstu 26 árin.

Sagnfræðingar telja margir að reiðin vegna afskipta erlendra ríkja og einræðisstjórnar keisarans hafi verið ein helsta kveikjan að byltingunni árið 1979 og yfirtöku klerkastjórnarinnar á stjórn landsins.

Sögulegt samhengi er því milli valdaránsins 1953 þeirra umfangsmiklu hernaðaraðgerða sem Bandaríkin og Ísrael standa nú fyrir í Íran.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: