- Advertisement -

Sagði Jens Garðar fara með rangt mál

Alþingi: Átök urðu á Alþingi nú fyrir skemmstu. Þingmönnum hljóp mörgum kapp í kinn:

„Ég verð að viðurkenna að hún kemur ekki á óvart, áframhaldandi andstaða Sjálfstæðisflokksins við að bæta almannatryggingar á Íslandi, að standa með fátækasta fólkinu á Íslandi. En ég geri verulegar athugasemdir við fundarstjórn forseta og óska eftir því að hún grípi inn í þegar háttvirtur varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Jens Garðar Helgason, kemur hérna í ræðustól, vitnar í seðlabankastjóra Íslands og fer með rangt mál. Hann dregur hér fram að hann hafi varað við og lagst gegn því að við myndum fara í atkvæðagreiðslu á morgun, sem er fjarri sannleikanum. Þetta er túlkun á fyrirsögn sem birtist á vefmiðli og er ekki rétt. Hann gengur lengra og lýsir því að það að bæta kjör lægst launaða fólksins í landinu muni einhvern veginn kynda undir verðbólgubálinu fram undan. Þetta er til skammar, háttvirtur þingmaður, og ég bið hæstvirtan forseta að stíga inn í þegar þingmenn fara með rangt mál undir þessum lið.“

En hvað sagði Jens Garðar:

„Óveðursskýin hrannast upp yfir Íslandi í dag í efnahagsmálum. Það var dökkur dagur í dag þegar stýrivextir hækkuðu úr 7,25% í 7,5%. Stýrivextir eru að hækka, verðbólga er að aukast og atvinnuleysi er það mesta sem hefur sést síðan í heimsfaraldri. Núna í dag var seðlabankastjóri að vara þingheim við því að klára og afgreiða málið um launavísitölutengingu almannatrygginga. Hann varaði við því og sagði að það yrði verðbólguhvetjandi, myndi kynda verðbólgubálið. Það er líklega ekki að ástæðulausu að það mál sem var klárað hér í 3. umræðu í gær er ekki hér á dagskrá akkúrat þegar stýrivextir eru að hækka.

Ég tel að háttvirtir stjórnarþingmenn verði að hugsa sig vel um þegar þetta mál kemur til atkvæðagreiðslu.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: