Stjórnmál: Sigurjón Þórðarson, þingmaður og formaður fjárlaganefndar Alþingis, skrifaði:
Formaður Sjálfstæðisflokksins hélt skörulega ræðu á flokksráðsþinginu þar sem hún sagðist m.a. vilja horfa fram á veginn. Guðrún virtist hins vegar misskilja illilega hvað það merkir að vera borgaralegur og virða borgarleg gildi. Það er nefnilega ekki að ganga í fínni dragt, haldandi á merkjaveski og flaðra upp um allt hvað eina sem kemur frá Viðskiptaráði.
Borgarleg gildi felast í því að; virða lög og reglur samfélagsins og berjast m.a. gegn spillingu, verja tjáningar- og trúfrelsi og tryggja að borgararnir séu jafnir fyrir lögum. Það er miður að Sjálfstæðisflokkurinn noti ekki tímann í stjórnarandstöðu til þess að endurmeta stefnu sína m.a. í sjávaútvegs-, húsnæðis- og í byggða- og efnahagsmálum svo eitthvað sé nefnt.
Nei, nei það virðist ekkert endurmat vera í kortunum heldur er Vg enn kennt um ófarir Sjálfstæðisflokksins. Ef út í það er farið þá er núverandi forseti Namibíu Netumbo Nandi-Ndaitwah mun betur áttuð en formaður Sjálfstæðisflokksins á mikilvægi borgaralegra gilda og standa vörð um auðlindir þjóðainnar – Hvers vegna ælti að svo sé?