„Slíkt er ekki fyrir hendi og því spái ég að ríkisstjórnin þurfi að leggja sig mun meira fram til að ná tökum á hagstjórninni og verðbólguvæntingum og að kjarasamningar haldi.“
Lilja Alfreðsdóttir.
„Forsætisráðherra viðurkennir nú loksins vandann um að ekki hafi tekist að lækka verðbólgu og því hafi vextir hækkað á ný. Planið er ekki að virka,“ þannig sér Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknar, nýjasta plan ríkisstjórnarinnar
„Það er jákvætt að viðurkenna stöðuna. Mér er til efs að þessar efnahagsaðgerðir dugi til að ná tökum á verðbólguvæntingum. Forsætisráðherra hefur verið of lengi í afneitun um stöðu efnahagsmála og aðgerðirnar eru því í takt við það.
Við í Framsókn viljum sjá mun víðtækari aðgerðir og mun meiri samvinnu við aðila vinnumarkaðarins. Við munum kynna okkar efnahagsaðgerðir í næstu viku, sem eru meðal annars: verðbólgusía – sem gengur út á að hið opinbera fari ekki í neinar gjaldskrárhækkanir eða skattahækkanir sem eru hærri en 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands.
Við höfum einnig rætt að lækka virðisaukaskatt á eldsneyti og því er jákvætt að sjá þá aðgerð raungerast en ekki fyrir löngu sagði forsætisráðherra að slíkt væri útilokað. Við erum að reikna út kostnað við lækkun á matarskattinn, ásamt fleiri aðgerðum.
Til að efnahagsaðgerðir að þessum toga eigi að virka, þá þurfa þær að vera fjölbreyttari og unnar í samvinnu við vinnumarkaðinn. Slíkt er ekki fyrir hendi og því spái ég að ríkisstjórnin þurfi að leggja sig mun meira fram til að ná tökum á hagstjórninni og verðbólguvæntingum og að kjarasamningar haldi.“