- Advertisement -

Sagan sem ekki má gleymast

Heima er bezt: Í allri þeirri umræðu sem verið hefur s.l ár meðal stórs hóps sjómanna hér á Akureyri að það sé tími til komin að hér verði opnað sjóminjasafn, enda af nógu að taka til að koma svona safni á fót.

Þessi skoðun okkar sjómanna fékk svo sannarlega byr undir báða vængi þegar við mjög margir sjómenn fórum í ferð, bæði til Hull og Grimsby í Bretlandi í fyrra og svo til Bremenhaven og Cuxhaven í Þýskalandi í vor þar sem menn sáu svart á hvítu á sjóminjasöfnum þessara borga hve sögu sjómennsku er vel við haldið, og hún virt og mikill metnaður er í bretum og þjóðverjum að þessi saga glatist ekki og verði aðgengileg til komandi kynslóða.

Við margir sjómenn hér á Akureyri viljum gera þetta líka.

En einmitt í Bremenhaven þar sem við sjómenn vorum í stórum hóp um daginn héldum við ferðalangarnir sérstaka minningarstund um sjómann frá Akureyri, Þórarinn Guðmundsson að nafni sem lést í umferðarslysi í Bremenhaven 13. september árið 1955 þegar skip Þórarins Kaldbakur EA 1 var þar í söluferð. Þórarinn var 40 ár er hann lést.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þetta var einkar falleg stund og sannarlega virðingarverð.

Nú ber svo við að þegar ég kom heim og var að glugga í gögnum sem ég hef fengið sem skipta tugum kílóa, meðfram öðru er ég hef safnað sjálfur, að ég sá að annar íslenskur togarasjómaður frá Akureyri hafði látist í erlendri höfn.

Það gerðist þann 24. mars árið 1965 er ÚA síðutogarinn Svalbakur EA 2 var í söluferð í Grimsby.

Þar drukknaði 29 ára gamall Akureyringur Gunnar Geirsson að nafni. Talið var að hann hafi fallið milli skips og bryggju.

Mikið vildi ég að ég hefði vitað þetta í fyrra þegar við fórum rúmlega 40 sjómenn flestir frá Akureyri einmitt til Grimsby.

Þá hefði ég viljað hafa svona minningarstund um Gunnar eins og við gerðum í minningu Þórarins í Bremenhaven.

En það vissi ég ekki þá, og vil því geta þessa atburðar og minnast Gunnars Geirssonar hér á þessu aprílkvöldi á því herrans ári 2026.

Ég átti á dögunum einkar gott og fallegt spjall við Kolbrúnu Geirsdóttur systir Gunnars og Jóhann Hauksson mann Kolbrúnar og það var dásamlega gaman að heyra Kolbrúnu segja frá bróður sínum. Sú minning var bæði falleg og hlý og það var sannarlega kært með þeim systkinum.

Hún talaði svo fallega um hann og þessi stund hjá þeim hjónum í Þverholtinu var yndisleg.

Hún lét mig líka fá mynd af Gunnari bróður sínum og ég hef leyfi til að birta hana með þessum orðum.

Ég átti svo á dögunum leið um kirkjugarðinn á Akureyri og leitaði uppi legstað Gunnars, en hann hvílir í reit G18-45.

Blessuð sé minning Gunnars Geirssonar.

Það er einmitt svona atburðir sem við megum ekki láta falla í gleymsku, því þótt látnir séu eru þessir menn, Guði geymdir en aldrei gleymdir.

Fúsi Helga er skrifaður fyrir greininni.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: