
Umræðan: Dagur B. Eggertsson skrifaði eftirfarandi, ekki síst til Stefáns Einars Stefánssonar á Mogganum:
„Stærstu útgerðirnar áttu yfir 400 milljarða í öðrum félögum í árslok 2024!
Skýrsla Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um eignarhald 20 stærstu útgerðarfyrirtækjanna í öðrum rekstri – sem unnin var að beiðni minni birtist á vef Alþingis síðdegis. Það sem blasir við er að fyrirtækin áttu yfir 400 milljarða í öðrum félögum. Það er greinilega varlega áætlað og ekki allt talið.
Ég hef lýst þeim áhyggjum að stórútgerðin sé að eignast Ísland ef svona heldur áfram, vegna ofurhagnaðar af sameiginlegri auðlind þjóðarinnar, án þess að borga eðlileg veiðigjöld og aðgangi að hagstæðum lánum í evrum.
Ég hef verið krafin svara (sjá mynd) – og beðin um rök og gögn. Þau eru komin. Gjörðið svo vel!“