- Advertisement -

„Enn vantar pólitíska ákvörðun um fjármögnun og framkvæmd“

Ef aftur á móti er miðað við 1,5 milljón króna gæti kostnaður orðið 527 milljónir árlega.

Ingvar Þóroddsson.

Stjórnmál: Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar, sagði á Alþingi, nú undir helgina, að sér hafi borist svar Loga Einarssonar ráðherra um ívilnanir við endurgreiðslu námslána vegna starfa í heilbrigðisþjónustu úti á landi.

„Ég vil byrja á að þakka hæstvirtum ráðherra fyrir vandað og upplýsandi svar. Það varpar skýru ljósi á stöðu málsins sem skiptir miklu máli fyrir heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Í svarinu kemur fram að starfshópur heilbrigðisráðherra lagði til að beitt yrði heimildum 28. gr. laga um Menntasjóð námsmanna til að bregðast við skorti á heilbrigðisstarfsfólki á tilteknum svæðum. Tillögurnar gengu m.a. út á að veita árlega lækkun á höfuðstól námslána tímabundið gegn því að fólk starfi á skilgreindum svæðum.

Í svarinu kemur jafnframt fram að ráðuneytinu hafi borist fimm beiðnir frá sveitarfélögum eða samtökum sveitarfélaga um beitingu úrræðisins. Byggðastofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa skilað skýrslum vegna þessara erinda og Menntasjóður námsmanna hefur lagt mat á mögulega útfærslu og kostnað. Það sem kemur einnig fram í svarinu er að fjármögnun sé ekki tryggð og þar þurfum við þingmenn, sem látum okkur málið varða, að beita okkur.

Ég mun gera það og mun áfram halda þessu máli á lofti. Í svari ráðherra kemur fram að ef miðað er við 700.000 kr. árlega lækkun á höfuðstóli námslána gæti kostnaðurinn numið allt að 226 millj. kr. á ári. Ef aftur á móti er miðað við 1,5 milljón króna gæti kostnaður orðið 527 millj. kr. árlega. Þá kemur einnig fram að í samráði við heilbrigðisráðherra hafi verið óskað eftir því að Byggðastofnun afmarki svæðin nánar, m.a. með það fyrir augum að lækka kostnað, og að leitast verði við að tryggja fjármögnun frá árinu 2027.

Ég fagna því að málið sé komið á þetta stig en það er ljóst að enn vantar pólitíska ákvörðun um fjármögnun og framkvæmd. Ég bíð spenntur eftir svari hæstvirts heilbrigðisráðherra við annarri fyrirspurn um sama mál. Þar skiptir máli að fá skýrt fram hvort og hvernig stjórnvöld hyggjast nýta þessi úrræði til að styrkja mönnun þar sem þörfin er mest því að markmiðið er einfalt, líkt og háttvirtur þingmaður María Rut Kristinsdóttir kom inn á í sinni góðu ræðu hér í störfum þingsins; að fólk geti treyst á öfluga heilbrigðisþjónustu óháð búsetu.“ 


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: