- Advertisement -

Mesta sérhagsmunaríkisstjórn sögunnar

Hún er lifandi dauð. Og hvað gerir hún? Hún reynir að hlaupa með þjóðina í fangið á ESB.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Alþingi: Guðlaugur Þór Þórðarson sagði á Alþingi:

„Slagorðastjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins er búin að starfa í eitt og hálft ár. Eigum við að fara yfir nokkur; planið, sleggjan, velferðarvorið. Og nú er bara uppgjöf. Nú koma stjórnarliðar og segja: Svipuhöggin dynja á almenningi. Já, svipuhöggin dynja nefnilega á almenningi frá hæstv. ríkisstjórn. Það er þannig, virðulegi forseti, þegar menn taka við góðu búi — síðasta ár var hallalaust miðað við þær bestu upplýsingar sem við höfum fengið — og auka hallann, auka ríkisútgjöldin um 143 milljarða og hækka skattana um 30 milljarða þá eru menn að hækka vexti á almenning. Þessi ríkisstjórn hefur fullkomlega gefist upp.

Hún er lifandi dauð. Og hvað gerir hún? Hún reynir að hlaupa með þjóðina í fangið á ESB. Hún reynir í fullri alvöru að halda því fram að það hafi með almannahagsmuni að gera að taka öll völdin, sem þeir sem á undan komu fengu fyrir okkur Íslendinga, og færa þau til Brussel. Virðulegi forseti. Þetta eru sérhagsmunir stjórnmálamanna og embættismanna. Það eru engir meiri sérhagsmunir hjá stjórnmálamönnum en að koma Íslandi í Evrópusambandið. Þessi ríkisstjórn er mesta sérhagsmunaríkisstjórn sem hefur verið kosin á Alþingi Íslendinga.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: