- Advertisement -

Mikill munur er á milli markaðsverðs og innri verðlagningar, segir ráðherra

Ég hef áður sagt að mér þykir sá munur hreinlega sláandi.

Hanna Katrín Friðriksdóttir.

Alþingi: Hanna Katrín Friðriksdóttir atvinnuvegaráðherra sagði á Alþingi fyrir skömmu:

„Hvað varðar verðlagningu afla, samkeppnisskilyrði og hlutdeild sjómanna er að mínu mati fyllilega tilefni til að skoða þau mál nánar. Eins og þingmaðurinn þekkir þá samþykktum við fyrir tæpu ári leiðréttingu á veiðigjöldum þar sem viðmið við útreikning á veiðigjaldi var leiðrétt og nú er stuðst við markaðsverð, eins nálægt því og við komumst, og það var stórt og mikilvægt skref. Með breytingunum á veiðigjöldum kom auðvitað í ljós þessi mikli munur sem er á milli markaðsverðs og innri verðlagningar. Við sjáum líka mikinn verðmun á loðnu í Færeyjum og á Íslandi eins og svar atvinnuvegaráðuneytis við fyrirspurn háttvirtur þingmaður Eydísar Ásbjörnsdóttur leiddi í ljós. Ég hef áður sagt að mér þykir sá munur hreinlega sláandi. Það sýnir einfaldlega að það er viðvarandi verkefni að tryggja að þjóðin fái sanngjarnan hlut af raunverulegu aflaverðmæti og sýnir einnig, eins og ég hélt ítrekað fram í umræðunni um leiðréttingu veiðigjalda, að það er illmögulegt að ná fram raunverulegu markaðsvirði í hinu flókna og ógegnsæja kerfi veiðigjalda sem við höfum notað.

Við leiðréttum veiðigjöldin einmitt til þess að setja þau nær eðlilegum markaðssjónarmiðum og að þjóðin fengi sanngjarna hlutdeild í auðlindinni okkar.“ Hér er slóð á alla ræðuna.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: