Skatturinn liggur á upplýsingum um útflutningsverðmæti sjávarafla.
Alþingi: Sigurjón Þórðarson tók til máls á Alþingi í dag. Hann sagði:
„Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur um næstu helgi og af því tilefni óska ég sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn. Allt frá því að dagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur árið 1938 hefur hann verið nýttur til að minna á mikilvægi starfa sjómanna fyrir þjóðarbúið, afkomu þeirra og öryggi.
Verðlagning á fiski, m.a. loðnu, er með þeim hætti að augljóslega er verið að svindla á sjómönnum. Það blasir við að verðið sem útgerðin skammtar sjómönnum er langt undir raunvirði. Meðvirkni stjórnvalda í þessum efnum er áhyggjuefni, þ.e. hvað Skatturinn hefur verið tregur að veita upplýsingar um útflutningsverðmæti frystrar loðnu. Skatturinn sér alla meinbugi á því að miðla þessum upplýsingum, m.a. til annarra stjórnvalda á borð við Verðlagsstofu skiptaverðs.
Skatturinn hleypur aftur á móti í mikla vörn og flækjur…
Skatturinn veitir hins vegar viðstöðulaust allar upplýsingar um tekjur lífeyrisþega til Tryggingastofnunar, m.a. öryrkja og ellilífeyrisþega. Hann hleypur aftur á móti í mikla vörn og flækjur þegar óskað er eftir skýrum upplýsingum um útflutningsverðmæti afurða sem unnar eru úr sameiginlegri auðlind þjóðarinnar. Hver er skýringin á þessari leynd og hvaða tilgangi þjónar hún, frú forseti?
Það er mjög auðvelt að fá upplýsingar um útflutningsverðmæti áls frá Íslandi, það er minnsta mál. Það sama á við um magn og verðmæti innfluttra banana, það er ekkert mál. En þegar kemur að upplýsingum um verð á frystri loðnu þá vandast málið. Það er nauðsynlegt að minna á að hagur íslenskra sjómanna fer saman með hag íslenskra sjávarútvegssveitarfélaga og ríkissjóðs. Það væri góður bragur á því að fá þessar upplýsingar fram í dagsljósið áður en sjómannadagurinn rennur upp um komandi helgi. Og enn og aftur: Til hamingju, sjómenn, með daginn.“