- Advertisement -

Vinstrisinnar fá ekki vera með

Borgarstjórn: Búið er að mynda hagræðingarhóp innan borgarinnar. Ari Edwald borgarfulltrúi Miðflokksins og Pétur Marteinsson borgarfulltrúi Samfylkingarinnar munu sitja í stýrihópi Hildar Björnsdóttur borgarstjóra sem á að leiða umfangsmiklar hagræðingar- og stjórnkerfisbreytingar innan borgarinnar á næstu tveimur árum.

Borgarráð samþykkti í gær erindisbréf stýrihópsins. Þar kemur fram að auk Ara og Péturs muni þau Hildur Björnsdóttir borgarstjóri, Björg Magnúsdóttir forseti borgarstjórnar, Einar Þorsteinsson formaður borgarráðs og Róbert Ragnarsson borgarfulltrúi Viðreisnar sitja í hópnum, en Róbert verður formaður hópsins.

Sönnu Magdalenu var nóg boðið og bókaði. „Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins, Sanna Magdalena Mörtudóttir, lagði á fundinum fram bókun þar sem hún sagði það vekja athygli að fjórir fulltrúar í hópnum væru fyrir hönd þeirra þriggja flokka sem sitja í meirihluta borgarstjórnar á meðan aðeins tveir borgarfulltrúar sætu fyrir hönd minnihlutans. 

Sagði Sanna í bókuninni að í jafn viðamiklu verkefni hefði betur farið á því að allir flokkar ættu fulltrúa í stýrihópnum.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: