- Advertisement -

Að kíkja í pakkann er hlægilega vitlaust

Hér er brotabrot úr Reykjavíkurbréfi Moggans:

„Orðalagið að kíkja í pakkann er ekki lengur notað af aðildarsinnum því að það er orðið svo hlægilega vitlaust, en þá er gripið til alls kyns annarra útgáfa af því, svo sem að sjá hvaða samningum við náum, sem er auðvitað sami hluturinn.

Allur sá málflutningur, hvernig sem hann er orðaður, gengur út á að kanna hvort og þá hvaða undanþágur Evrópusambandið er tilbúið að veita Íslandi ef það ákveður að gerast aðili. Og þá hefur hingað til skipt meginmáli hvort undanþágurnar væru varanlegar og öruggar, en ekki tímabundnar og háðar ákvörðun annarra þjóða eða embættismanna í Brussel.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Um þetta allt vilja stjórnvöld, með utanríkisráðherra í broddi fylkingar, sem minnst tala. Á þeim bæ er aðeins boðið upp á yfirborðskennt tal um mikinn skilning í Brussel á sérstöðu okkar og afar sterka stöðu Íslands nú til að sækja undanþágur. Ekkert fast í hendi auðvitað og fullyrðingar utanríkisráðherra um ummæli erlendra ráðamanna stangast jafnvel á við það sem þeir sjálfir segja opinberlega. Allt er það með ólíkindum en segir sitt um veikan málstað og trúverðugleika íslenskra stjórnvalda til að gæta hagsmuna Íslands ef til aðlögunarviðræðna kæmi.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: