- Advertisement -

Aðrir þingmenn hafa verið enn grófari

- segir Sigmundur Davíð í bréfi til flokksmanna. Segir einnig að þingmenn stundi að úthúða flokksfélögum sínum.

Í  bréfi Sigmundar Davíðs, vegna Klaustursmálsins, er eftirtektarverðast að hann segir þingmenn oft hafa verið grófari í tali en heyra má á upptökunum frægu.

Sigmundur Davíð skrifar: „Slík samsæti hafa átt sér stað allan þann tíma sem ég hef verið í pólitík og af sögum eldri þingmanna að dæma miklu lengur. Ég hef hlustað á þingmenn flestra flokka úthúða flokksfélögum sínum og nota orðbragð sem í sumum, jafnvel mörgum, tilvikum er enn grófara en það sem birst hefur að undanförnu. Þingmenn af báðum kynjum eiga þar í hlut og fórnarlömbin eru auk þess af báðum kynjum.“

Þar sem hann hefur hafið þessa umræðu verður að gera þá kröfu til hans að skýri frá því sem hann veit.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: