- Advertisement -

„Áfengi kemur að stórum hundraðshluta alvarlegra slysa og ofbeldisverka“

Kári Stefánsson skrifar grein i Mogga dagsins um hina ólöglegu netsölu á áfengi. Hér eru tveir hlutar greinarinnar.

Kári Stefánsson.

„Aukin neysla áfengis eykur þann fjölþætta vanda sem áfengi veldur:

Áfengi kemur að stórum hundraðshluta alvarlegra slysa og ofbeldisverka. Heimilisofbeldi á sér til dæmis oftast stað þegar gerandinn er undir áhrifum áfengis. Áfengisnotkun eykur líkur á margs konar gerðum af krabbameinum eins og lifrarkrabbameini, briskrabbameini og krabbameini í vélinda og munni og áfengisnotkun hækkar blóðþrýsting og eykur líkur á hjartabilun. Verst af þeim sjúkdómum sem fylgja áfengisdrykkju er samt áfengissýkin sjálf, sem oftar en ekki leggur líf neytandans og fjölskyldu hans í rúst. Áfengi er einn af þeim þáttum í umhverfi okkar sem valda hvað mestu álagi á heilbrigðiskerfið okkar sem er komið að fótum fram.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Síðar í þessari góðu grein Kára Stefánssona segir:

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.

„Þegar íslensk lög eru lesin virðist það skýrt að netsala með áfengi sé ólögleg á Íslandi og héraðsdómur er búinn að staðfesta það. Engu að síður gerir lögreglan ekkert í málinu og dómsmálaráðherra segir að hún ætli ekki að fara fram á að það við lögregluna að hlutast til um málið. Hún segist ekki vilja búa í landi þar sem lögreglunni sé sagt fyrir verkum. Hún virðist ekki gera sér grein fyrir því að framkvæmdarvaldið liggur hjá ríkisstjórninni og í þessu máli hjá dómsmálaráðherra og lögreglan er eitt af þeim tækjum sem hann á að nota til þess að sjá til þess að lögum sé fylgt. Og ef lögreglan er ekki að sinna skyldum sínum ber ráðherra að beita húsbóndavaldi sínu. Netverslun með áfengi er þess vegna eins og stendur í boði ríkisstjórnar og þá sérstaklega dómsmálaráðherra þótt hún sé í trássi við lög.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: