- Advertisement -

Arfavitlaus stýrivaxtaákvörðun

„Málið er hins vegar að Seðlabankinn, peningastefnunefnd og seðlabankastjóri eru sjálfstætt efnahagslegt vandamál. Við því eru tvær lausnir: Að skipta um stefnu og skipta um áhöfn.“

Þorsteinn: „Það er alveg klárt að rödd þjóðarinnar og þjóðfélagsins mun ekki heyrast inn fyrir múra Svörtulofta.“

„Á óvissutímum getum við Íslendingar alltaf gengið að einu sem gefnu, að með lögbundnu millibili komi Seðlabanki Íslands og gefur út arfavitlausar stýrivaxtaákvarðanir. Einn slíkur morgunn var í morgun og hefur sú stýrivaxtahækkun Seðlabanka Íslands fengið eftirfarandi einkunnir hjá málsmetandi fólki: Hún er ótímabær, hún er með ólíkindum, hún er stríðsyfirlýsing og köld kveðja inn í kjaraviðræður.“

Þannig mælti Þorsteinn Sæmundsson á Alþingi í dag.

„Seðlabankastjóri sagði í morgun að óvissa út af kjarasamningum væri eins og ský yfir þjóðinni. Á sama tíma kastar hans spreki á þann óvissueld. Seðlabankastjóri sagði líka að nú væru meiri verðbólguvæntingar en hefðu verið lengi. Á sama tíma kastar hann lurki á verðbólgubálið,“ sagði Þorsteinn.

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Seðlabankinn fer á taugum út af kjarasamningunum. Það er næsta víst að með ákvörðuninni sýnir Seðlabankinn, peningastefnunefnd og seðlabankastjóri að þau hafa engu gleymt og ekkert lært.“

Og að lokum sagði Þorsteinn: „Það er alveg klárt að rödd þjóðarinnar og þjóðfélagsins mun ekki heyrast inn fyrir múra Svörtulofta. Málið er hins vegar að Seðlabankinn, peningastefnunefnd og seðlabankastjóri eru sjálfstætt efnahagslegt vandamál. Við því eru tvær lausnir: Að skipta um stefnu og skipta um áhöfn.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: