- Advertisement -

Aron og Margrét vinsælustu nöfnin

Mannlíf Aron var vinsælasta eiginnafn nýfæddra drengja á árinu 2014 en þar á eftir Alexander og Viktor en Margrét vinsælasta stúlkunafnið en þar á eftir Anna og Emma.

Þór var langvinsælasta annað eiginnafnið hjá drengjum, en þar á eftir Hrafn og Freyr.  María var vinsælasta annað eiginnafnið hjá stúlkum. Á eftir þeim kom stúlkunafnið Rós og Ósk sem vinsælasta annað eiginnafn nýfæddra stúlkna.

Þegar litið er á allan mannfjöldann í ársbyrjun 2015 voru 10 algengustu einnöfnin og fyrstu eiginnöfnin þau sömu og árið 2010. Hjá körlum var Jón algengasta nafnið, þá Sigurður og svo Guðmundur. Af kvenmannsnöfnum er Guðrún algengast, þá Anna og svo Kristín. Tíu algengustu karl- og kvenmannsnöfnin hafa verið þau sömu frá 2010.

Flestir landsmenn bera fleiri en eitt nafn. Í ársbyrjun 2015 voru þrjár algengustu samsetningarnar hjá körlum Jón Þór, Gunnar Þór og Jón Ingi. Þetta voru einnig algengustu tvínefnin fimm árum fyrr. Hjá konum voru þrjár algengustu samsetningarnar Anna María,  Anna Margrét og Anna Kristín. Þetta voru líka þrjú algengustu tvínefnin árið 2010.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Afmælisdagar á Íslandi dreifast ekki jafnt yfir árið. Algengara er að börn fæðist að sumri og á hausti en yfir vetrarmánuðina, frá október og fram í mars. Alls eru 51,5% allra afmælisdaga á tímabilinu frá apríl til september. Í upphafi árs 2015 gátu flestir átt von á því að halda upp á afmælisdaginn 27. september, alls 1.025 einstaklingar. Fæstir áttu afmæli á hlaupársdag, 29. febrúar, eða 210 manns. Næst kemur jóladagur (667) og aðfangadagur (709).

Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar, hagstofa.is.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: