- Advertisement -

Ásta fékk 70 prósenta launahækkun

Umræðan/Facebook: Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifaði:

„Skrýtið að heyra forstjóra Festis í Silfrinu tala um ,,skuggalega launaþróun“. Árið 2022 var hún með 3.2 milljónir í laun, en tveimur árum síðar, 2024, voru laun hennar komin í 5,4 milljónir. Það er tæplega 70% hækkun. Hreinn hagnaður Festis (sem á meðal annars Krónuna) var í fyrra 6 milljarðar (6000 milljónir), allt jú vegna sölu á matvörum. Árslaun skúringakonu í Eflingu ná mögulega ,,gömlu“ launum Ástu Fjeldsted, sem sjálf á hlut í Festi, sem greiðir henni launin. Hún er örugglega mjög góður forstjóri og allt það. Fram kom í Silfrinu að hún vill að ,,ríkið geri sem minnst, en geri það best“ – sem þýðir á mannamáli að hún vill það sem hægri menn kallast ,,lágmarksríki“. Magnaður andsk…“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: