- Advertisement -

Bæði viðmótsvandi og viðhaldsvandi

Kolbrún Baldurssdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, segist tala fyrir daufum eyrum meirihlutans. Hennar upplifun er sú að meirihlutinn sé meðvirkur embættismannakerfinu.

Mikið ber á milli meirihluta og minnihluta í borgarstjórn Reykajvíkur. Og enn bætist í ófriðarbálið.

Kolbrún Baldurssdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, segist hafa frá upphafi starfs síns reynt að koma því áleiðis til borgarmeirihlutans að hjá Félagsbústöðum er margslunginn vandi m.a. viðmótsvandi og viðhaldsvandi og er álit þetta byggt á þeim fjölmörgum kvörtunum sem borist hafa.

„Ein tillaga  Flokks fólksins, sem lögð var fyrir borgarstjórn 19. júní og varðaði úttekt óháðs aðila á Félagsbústöðum s.s. leigusamningum og hvernig þeir eru kynntir leigjendum hefur nú þegar verið felld af meirihlutanum,“ segir hún i bókun í borgarráði.

Þar segir að tillagan um að borgin hefji þá vinnu að skoða með raunhæfum hætti hvort færa eigi Félagsbústaði aftur undir A-hluta borgarinnar  hefur nú einnig verið felld.

Þú gætir haft áhuga á þessum
„Borgarfulltrúi Flokks fólksins væri ekki að vinna vinnuna sína ef hann hlustaði ekki á borgarbúa í þessu efni sem öðru.“

„Borgarfulltrúa Flokks fólksins finnst hann tala fyrir daufum eyrum meirihlutans og upplifir meirihlutann jafnvel vera meðvirkan með ástandinu enda hefur ekki verið tekið undir neinar ábendingar eða athugasemdir sem fram hafa verið lagðar í þessu sambandi. Borgarfulltrúi Flokks fólksins væri ekki að vinna vinnuna sína ef hann hlustaði ekki á borgarbúa í þessu efni sem öðru. Fyrirtæki undir B hluta borgarinnar á ekki að vera fjarlægt hvorki minnihlutanum né fólkinu sem það þjónar. Starf borgarfulltrúa felst m.a. í því að fylgjast með öllum borgarrekstrinum og hafa afskipti ef á þarf að halda og mun borgarfulltrúi halda áfram að gera það í þeirri von að tekið verði á vandanum fyrir alvöru og til framtíðar.“

Viðmót starfsmanna verði kannað

Kolbrún segist tilbúin með tvær aðrar tillögur. Önnur er tillaga um könnun á þjónustu Félagsbústaða í tengslum við samskipti starfsmanna fyrirtækisins við leigjendur. „Við framkvæmd könnunarinnar skal leita til núverandi og fyrrverandi leigjenda og þá sem eru á biðlista eftir félagslegu húsnæði í dag og óska eftir að þeir taki þátt í könnuninni og veiti upplýsingar um álit sitt á viðmóti, viðhorfi og framkomu starfsmanna Félagsbústaða í þeirra garð,“ segir þar.

Viðhaldsþörf verði könnuð

Eins er tillaga um að fenginn verði óháður aðili til að meta viðhaldsþörf hjá Félagsbústöðum þar sem kvartanir hafa borist vegna myglu eða annarra galla þegar ágreiningur er uppi á milli leigjanda og Félagsbústaða. „Í matinu skal jafnframt koma fram hvers lags viðgerða sé þörf og hvort viðgerðir hafi verið framkvæmdar með fullnægjandi hætti,“ segir Kolbrún.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: