- Advertisement -

Félagsbústaðir utan lagarammans?

Mikið er ég fegin að við Vigdís Hauksdóttir komu þessu máli til ríkissaksóknara hvað svo sem kemur út úr því.

Kolbrún Baldursdóttir skrifar:

Braggaskýrslunni stungið undir stól, segir Einar Hálfdánarson sem sagt hefur sig úr endurskoðunarnefnd Reykjavíkurborgar. Mikið er ég fegin að við Vigdís Hauksdóttir komu þessu máli til ríkissaksóknara hvað svo sem kemur út úr því. Þetta eru stórtíðindi. Einar segir sig úr nefndinni vegna reikningsskilaaðferða Félagsbústaða sem gerir upp sínar 2000 íbúðir á gangverði en ekki afskrifuðu kostnaðarverði. Þetta segir Einar stæðist ekki íslensk lög. Flokkur fólksins hefur ítrekað minnst á þetta í bókunum allt frá 2018. Þessa athugasemd má sjá í greinargerð fyrstu tillögu minni í borgarstjórn sem lögð var fram 19. júní 2018:

Þú gætir haft áhuga á þessum

Ýmislegt orkar tvímælis.

Tillaga borgarfulltrúa Flokks fólksins um rekstrarúttekt á Félagsbústöðum. Borgarstjórn samþykkir að fela innri endurskoðanda Reykjavíkur að gera rekstrarúttekt á Félagsbústöðum. Einnig úttekt á öryggi leigutaka og formi leigusamninga með tilliti til stöðu leigutaka. Úttektin skal liggja fyrir eigi síðar en á fyrsta borgarstjórnarfundi í september.

Greinargerð:

Leiguverð á íbúðum Félagsbústaða hefur í einhverjum tilfellum verið að hækka og er að sliga marga leigjendur. Einnig hafa fjölmargar ábendingar og kvartanir borist um að húsnæði á vegum Félagsbústaða sé ekki haldið við sem skyldi.

Óskað er eftir úttekt á rekstri félagsins, þar sem farið er yfir launamál stjórnenda þess, stjórnarhætti og hlutverk fyrirtækisins m.a. í ljósi misvísandi upplýsinga um annars vegar hagnað og hins vegar ríka fjárþörf. Það er ýmislegt sem orkar tvímælis þegar rýnt er í rekstur félagsins en það skal ekki rekið í ágóðaskyni. Í ljósi þess er athyglisvert að Félagsbústaðir hafi sýnt svo mikinn hagnað á liðnu ári. Óskað er eftir að svarað verði spurningum um það hvernig hinn mikli hagnaður félagsins er myndaður og hvernig þessir liðir eru færðir í bókhaldi félagsins. Í úttektinni þarf m.a. að svara hvernig vinnubrögð eru viðhöfð við endurmat eigna og færslu bókhalds í því sambandi. Er núverandi rekstrarform sem best til að þjóna hagsmunum notenda?


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: