- Advertisement -

Borgarráð matað á röngum upplýsingum

Kolbrún Baldursdóttir.

„Skýrsla innri endurskoðunar liggur fyrir í braggamálinu og sú er svört,“ segir Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins. Segja má að aðrir litir en sá svarti hafi ekki komið til greina.

Kolbrún bókaði eftirfarandi:

„Skýrsla innri endurskoðunar um Nauthólsveg 100 er svört og mikið áfall. Í henni er rakið hvernig hver þáttur á eftir öðrum stríddi gegn góðum stjórnsýsluháttum. Nefna má að verkefnin voru ekki boðin út, kostnaðareftirlit var ábótavant, ekki voru gerðir samningar, margar vinnustundir skrifaðar og á einum tímapunkti voru 18 verktakar í vinnu. Reikningar voru samþykktir en ekki fylgst með að útgjöld væru innan fjárheimildar. Í frumkostnaðaráætlun vantaði marga þætti og sú áætlun sem gerð var, var ekki virt. Fram kemur að innkauparáð fékk ekki réttar upplýsingar, skýrslu ráðsins var ekki fylgt eftir. Biðlund ráðsins var of mikil eftir því sem fram kemur. Eitt það alvarlegasta er að borgarráð fékk rangar upplýsingar. Flokkur fólksins myndi vilja fá álit frá aðila utan borgarkerfisins á broti á innkaupareglum og umboðsþáttum. Fram kemur að misferlisáhætta er mikil en skortur er á sönnunum. En liðið er liðið og ekki er efast um borgarmeirihlutinn mun draga af þessu lærdóm og breytingar gerðar í kjölfarið til að koma í veg fyrir að svona lagað endurtaki sig. En er þar með verið að draga eitt stórt pennastrik yfir Nauthólsveg 100? Borgarfulltrúa Flokks fólksins finnst enn mörgum spurningum ósvarað og þá kannski helst sú, mun einhver ætla að axla á þessu ábyrgð?“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: