SVN.is:
Haustið 2024 festi Síldarvinnslan kaup á ferskfisktogaranum Þóri SF af Skinney – Þinganesi á Hornafirði. Þegar skipið komst í eigu Síldarvinnslunnar fékk það nafnið Birtingur. Skipið hefur að mestu legið í Hafnarfjarðarhöfn eftir að það komst í eigu Síldarvinnslunnar og þar hefur verið unnið að ýmsum umbótum á því að sögn Grétars Arnar Sigfinnssonar rekstrarstjóra útgerðar fyrirtækisins.
Skipið var smíðað í Taívan árið 2009 og er það 637 brúttótonn að stærð. Árið 2019 voru gerðar allumfangsmiklar breytingar á skipinu og var það þá meðal annars lengt um 10 metra. Í skipinu er fullkominn vinnslubúnaður og spilkerfi þess hefur að miklu leyti verið endurnýjaður.
Eins og fram hefur komið mun Birtingur verða gerður út í stað togaranna Jóhönnu Gísladóttur GK og Gullvers NS. Á Birtingi verða tvær áhafnir og verða þeir Hjálmar Ólafur Bjarnason og Einar Ólafur Ágústsson skipstjórar.
Birtingur hélt til veiða frá Hafnarfirði sl. nótt og er um prufutúr að ræða. Gert er ráð fyrir að skipið komi að landi í fyrramálið og hefji síðan veiðar af fullum krafti eftir páskahátíðina.
Myndatexti: Birtingur NK. Ljósm. Smári Geirsson