- Advertisement -

„Blaðamennska er sem lykill að samfélaginu“

Samfélagið byggist upp og skánar eftir því sem fleiri gefa skýrslu um eigin reynslu, álit og niðurstöðu.

Gunnar Smári.

Gunnar Smári skrifaði:

Flest er gott og skemmtilegt við að fá að stunda blaðamennsku. Blaðamennska er eins og lykill að samfélaginu, þú getur í raun rætt við hvern sem er hvenær sem er um hvað sem er. Það var þessi þáttur blaðamennskunnar sem ég varð ástfanginn af sem ungur maður. Og sú ást hefur ekki dvínað. Ég sit löngum stundum við Rauða borðið á Samstöðinni og fæ allskonar fólk til að segja mér allskonar um samfélagið okkar og heiminn. Ég þarf engin siglingatæki, læt bara eigin forvitni stýra því hvert skal haldið hverju sinni.

Einn er þó gallinn. Ef þessi samtöl væru bara fyrir mig en ekki hluti af fjölmiðli þyrfti ég ekki að dreifa viðtölunum á samfélagsmiðlum. Og þegar ég geri það mætir reglulega fólk á þræðina sem vill benda á að viðmælandinn sé ómerkilegur asni, illa innrættur eða með óhreint mjöl í pokahorninu; að það sem hann vill leggja til umræðunnar sé eitthvað sem ekkert gildi hafi, sé misskilningur og þvæla. Aldrei er bent á neitt sérstakt, þetta eru bara fullyrðingar byggðar á sannfæringu um að fólk sé almennt skíthælar sem ekkert er að marka hvað segir.

Ég vildi að þetta væri ekki svona. Það væri auðveldara fyrir mig að bjóða fólki í viðtal ef þessi hali fylgdi ekki með. Það er að mörgu leyti erfitt að mæta einhvers staðar og segja frá reynslu sinni, þekkingu og skoðunum. Í raun ættum við að þakka öllum sem það gera. Samfélagið byggist upp og skánar eftir því sem fleiri gefa skýrslu um eigin reynslu, álit og niðurstöðu.

En helst af öllu myndi ég vilja að fólk hlýjaði á nakta kónginn, sem birtist okkur alla daga í allskyns kvikinda líki, haldandi því fram að allt sé eðlilegt og hann fullklæddur. Í stað þess að eyða orku í að grafa undan barninu sem bendir á hið augljósa, að kóngurinn er allsber þótt hann haldi að hann sé hulinn rökum, réttlæti og góðum siðum.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: