- Advertisement -

Dæmisaga úr íslenskum sjávarútvegi

Sigurjón Magnús Egilsson skrifar:

Skuldsett sjávarútvegsfyrirtæki kaupir annað minna. Það fyrirtæki hafði verið rekið með miklum sóma í áratugi. Eigendur þess höfðu ákveðið að fjárfesta í annarskonar starfsemi. Sem og þeir gerðu.

Skuldsetta fyrirtækið hafði keypt togara og fiskvinnslu. Gefin voru loforð um að allir starfsmenn selda fyrirtækisins héldu sinni vinnu. Bæði til sjós og lands. (Guggan veður áfram gul…). Svo fór að skuldirnar voru miklar og stjórnendurnir urðu að grípa til aðgerða.

Starfsfólki hins selda fyrirtækis var sagt upp. Mörgum tugum fólks. Þeirra beið atvinnuleysi í fyrsta sinn. Togarinn seldur og fiskvinnslunni lokað, svo ekkert varð eftir. Fólk sem áður hafði gengið glatt til vinnu alla daga gekk nú um án atvinnu.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Dagur og vikur liðu. Svo kom ný  frétt. Skuldsetta sjávarútvegsfyrirtækið hafði stækkað eigin saltfiskfabrikku í Portúgal og ráðið margt fólk þar til starfa. Í stað þess að efla saltfiskvinnsluna í eigin heimabæ var þessi leið farin, Íslendingar reknir – Portúgalar ráðnir.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: