- Advertisement -

DV dregur í land og biðst afsökunar

Fjölmiðlar „Þórey Vilhjálmsdóttir, aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, er með stöðu grunaðs í rannsókn ríkissaksóknara vegna leka úr Innanríkisráðuneytinu, líkt og kom fram í DV í dag.

Þórey er hins vegar ekki sá grunaði sem gengur undir nafninu „Starfsmaður B“ í skýrslu saksóknara. Starfsmaður B er Gísli Freyr Valþórsson, annar aðstoðarmaður ráðherrans.“

Þannig hefst tilkynning frá DV, sem birt var á vef blaðsins fyrir skömmu.

„DV biður Þóreyju afsökunar á því að hafa tengt hana við meint atferli „Starfsmanns B“ í úttekt á lekamálinu í helgarblaði DV. Mistökin eru á ábyrgð DV og koma til vegna rangra tenginga milli heimilda sem ritstjórn hafði aflað sér og á grundvelli þess að einungis er vísað til eins starfsmanns með réttarstöðu grunaðs manns í dómsskjölum. Um er að ræða mistök sem ritstjórn DV harmar, enda stendur aldrei til að tengja aðila máls ómaklega við það sem aðrir málsaðilar eru grunaðir um.

DV leggur þunga áherslu á rannsóknarblaðamennsku og mun í kjölfarið yfirfara heimildarvinnslu sem tengjast þessu tiltekna atriði málsins. Þetta breytir hins vegar ekki öðrum staðreyndum málsins.

Reynt hafði verið að ná í Þóreyju, sem er starfandi upplýsingafulltrúi í ráðuneytinu, síðastliðna þrjá daga. Skilin hafa verið eftir áríðandi skilaboð til hennar, enda hefur verið vísað til hennar sem upplýsingafulltrúa þegar haft er samband við ráðuneytið. Þórey hefur hins vegar ekki svarað.“

 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: