- Advertisement -

Efling: Ríkissáttasemjari braut lög

En þar hafði hann rangt fyrir sér. Hann mun ekki komast upp með tilraun sína til að svipta Eflingu sjálfstæðum samningsrétti. Það mun aldrei gerast.

Sólveig Anna:

Hann svaraði að það yrði seinna um daginn. Þegar ég gekk út af fundinum varð mér ljóst að ríkissáttasemjara lá á að losna við mig úr húsi vegna þess að hann var að hefja blaðamannafund kl. 11.

„Sáttasemjara ber að ráðgast við samninganefndir aðila áður en hann ber fram miðlunartillögu.“ Úr 27. gr. laga um stéttarfélag og vinnudeilur nr. 80/1938.

Rétt upp úr kl. 15 þann 25. janúar fékk ég af því fregnir frá manni ótengdum Eflingu sem starfar í verkalýðshreyfingunni að Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari væri í húsakynnum embættisins að ræða við aðila óviðkomandi Eflingu að hann ætlaði sér að leggja fram miðlunartillögu í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins.

Klukkan 15.17 sama dag sendi ég ríkisáttasemjara svohljóðandi póst: „Sæll, mér hefur borist til eyrna að þú ræðir um það á fundum í húsnæði ríkissáttasemjara við fulltrúa annara stéttarfélaga að þú sért í samráði við SA að undibúa miðlunartillögu í deilu Eflingar og SA. Er þetta rétt?”

Hann fyrirskipaði mér svo að koma á fund með mjög stuttum fyrirvara.

Klukkan 16.28 fékk ég svar frá ríkissáttasemjara þar sem hann sagði m.a. „Ég hef, hins vegar, ítrekað verðið spurður af því – m.a. af fólki í öðrum stéttarfélögum sem eru hér á fundum í ýmsum öðrum málum – hvort miðlunartillaga kynni að vera til lausnar deilunnar.“ Í símtali stuttu seinna endurtók ríkissáttasemjari að fjöldi fulltrúa annara stéttarfélaga hefðu rætt við hann möguleikann á miðlunartillögu, einnig blaðamenn og hann hefði meira að segja fengið skilaboð um það á Facebook.

Hann fyrirskipaði mér svo að koma á fund með mjög stuttum fyrirvara. Ég sagðist ekki geta boðað samninganefnd félagsins á fund með svo stuttum fyrirvara, sökum þess að hún væri mönnuð fólki sem væri í vinnu og þyrfti í það minnsta smá fyrirvara til að fá leyfi frá vinnu. Aðalsteinn sinnti þessu engu og hótaði að grípa til ótilgreindra “aðgerða” gegn mér ef að ég kæmi ekki á fund. Á fundinum sem haldinn var morguninn eftir, 26. janúar kl. 9.30., afhenti ríkissáttasemjari mér fullbúna miðlunartillögu ásamt skjali um “Framkvæmd og fyrirkomulag atkvæðagreiðslu um miðlunartillögu ríkissáttasemjara”. Á fundinum reyndi ég aftur og aftur að segja við ríkisáttasemjara að sú miðlunartillaga sem hann ætlaði sér að þröngva upp á Eflingu fæli í sér að Eflingar-fólk fengi allt að 20.000 krónum lægri hækkanir en meðlimir í öðrum SGS félögum, vegna mjög ólíkrar samsetningar félagahópsins. Ríkissáttasemjari brást ekki við neinum athugasemdum frá mér og sýndi engan vilja til að meðtaka þær. Í lok fundarins sem stóð í um það bil klukkutíma spurði ég hvenær hann ætlaði sér að birta tillöguna opinberlega. Hann svaraði að það yrði seinna um daginn. Þegar ég gekk út af fundinum varð mér ljóst að ríkissáttasemjara lá á að losna við mig úr húsi vegna þess að hann var að hefja blaðamannafund kl. 11.

…sökum þess að forysta Eflingar er “umdeild” kæmist hann upp með það.

Ljóst er og óumdeilanlegt að ríkissáttasemjari ráðgaðist á engum tímapunkti við formann Eflingar sem er jafnframt formaður samninganefndar félagsins. Hann ræddi fyrirætlanir sínar aftur á móti við fjölda annara, m.a. á kaffistofu embættisins við aðra formenn félaga sem tilheyra ASÍ. Hann hefur vafalítið rædd miðlunartillöguna við fulltrúa SA enda er hún að öllu leyti samhljóma síðasta tilboði SA til Eflingar en inniheldur ekkert af kröfum Eflingar. Eina ástæðan fyrir því að hann kallaði mig á fund var sú að ég hafði við hann samband eftir að ég hafði frétt af tillögunni frá þriðja aðila. Þetta eru allt staðreyndir sem enginn getur hrakið.

Hin augljósa niðurstaða er þessi: Ríkissáttasemjari braut lög. Hann hefur eflaust talið, ásamt ráðgjöfum sínum og samverkafólki, að sökum þess að forysta Eflingar er “umdeild” kæmist hann upp með það. En þar hafði hann rangt fyrir sér. Hann mun ekki komast upp með tilraun sína til að svipta Eflingu sjálfstæðum samningsrétti. Það mun aldrei gerast.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: