- Advertisement -

„Ég er að verða svo syfjuð…“

„Við höfum t.d. talað um að hækka bankaskatt og okkur hefur fundist bankarnir vera aflögufærir svo ekki sé meira sagt.“

Inga Sæland.

Alþingi „Ég er að verða svo syfjuð að ég man ekki eiginlega af hverju ég kom hingað en er að hugsa um að láta það flakka,“ þannig byrjaði Inga Sæland á kvöldfundi um fjáraukalögin.

„Ég er með breytingartillögu við fjáraukann um að við fellum brott a-lið 1. gr. sem felur í rauninni í sér að þá um leið munum við ekki veita heimild til aukinnar erlendrar lántöku upp á 30 milljarða kr., enda hefur Flokkur fólksins ásamt fleirum talað vel og rækilega um það og skýrt þau sjónarmið undir rekstri málsins,“ sagði Inga og hélt svo áfram:

„Við höfum meira að segja komið með tillögur um það hvernig í rauninni væri hægt að afla þessa fjár án þess að vera með erlendar lántökur [Kliður í þingsal.] og okkur þykir eiginlega alveg nóg um að við skulum nú þegar vera að greiða um 117 milljarða á ári í vaxtagreiðslur. Við höfum t.d. talað um að hækka bankaskatt og okkur hefur fundist bankarnir vera aflögufærir svo ekki sé meira sagt til að taka þátt í þeim verkefnum sem fyrir okkur liggja, sem eru ærin. Þannig að ég hvet ykkur náttúrlega öll, eins og ég veit, þið eruð öll mjög glöð og ánægð í kvöld og ég veit að þið munuð alveg hiklaust styðja þessa breytingartillögu því að hún er alveg til fyrirmyndar.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: