Sigurjón Magnús Egilsson skrifar:
Fyrir góðum fimmtán árum var ég dæmdur til refsingar vegna þess að fjallað var um áfengi í umfjöllun um mat í fréttatímaritinu Mannlífi, þar sem ég var ritstjóri. Annar maður sá um matarsíðurnar og ég skipti mér ekki af.
„Formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum vakti fyrstur athygli lögreglu á efninu, alls fjórum auglýsingum í sama tölublaði,“ segir í frétt Vísis um dóminn í málinu.
Ég og blaðamaðurnn vorum dæmdir til að greiða 400 þúsund krónur í sektir og til greiðslu sakarkostnaðar.
Miðað við það sem nú tíðkast var sök mín ekki mikil. Kostaði mig samt umtalsverða peninga.

(Hreinn Loftsson lögmaður var útgefandi Mannlífs og harðneitaði sem slíkur að taka þátt í greiðslunni. Man að ég sagði við hann, að ef hann hefð fengið borgað fyrir að rætt var. um rauðvin í matardálki blaðsins, væri hreint lágmark að ég fengi þá peninga. Hann þvertók fyrir það.)