- Advertisement -

Er enginn vinstri armur lengur til í Samfylkingunni?

Hrafn Magnússon skrifar:

„Í sjónvarpsþætti í síðustu viku hélt Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra. því fram að við Íslendingar hefðum gert marga milliríkjasamninga sem hefði reynst okkur vel. Taldi hún upp nokkra slíka samnimga og þar á meðal aðild okkar að NATO.

Mikil mótmælaalda reis þá upp meðal þjóðarinnar og óeirðir á Austurvelli þann 30. mars árið 1949 sem eru talin þau mestu í sögu þjóðarinnar. Fullyrt er að ef gengið hefði verið til kosninga um aðildina að NATO hefði meirihluti þjóðarinnar verið á móti aðild.

Þegar Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, telur að sá samningur hafi verið okkur til heilla, þó hann hafi klofið þjóðina í tvennt um áratugaskeið, þá er mér spurn. Er enginn vinstri armur lengur til í Samfylkingunni? Láta ærlegir vinstri menn sem komu úr Alþýðubandalaginu og Kvennalistanum og stofnuðu Samfylkinguna með krötum bara allt yfir sig ganga?

Þú gætir haft áhuga á þessum

Er sveiflan á hinu pólitíska sviði til hægri orðin svo mikil að Samfylkingin sé nú á sömu bylgjulengd og Sjálfstæðisflokkurinn var fyrir 20 árum?

Steinar Sigurjónsson sagði í einni skáldsögu sinni „Íslendingar eru hænsn“. Það er margt til í þeim orðum skáldsins.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: