- Advertisement -

Er Framsókn vindhani?

RVK: Stefán Pálsson varaborgarfulltrúi Vinstrisins skrifaði, nema að fyrirsögnin er Miðjunnar:

„Gjaldfrjáls strætó fyrir grunnskólabörn átti meðal annars að vera til hagsbóta fyrir skóla- og frístundasvið, sem þar með hefði ekki lengur þurft að taka afstöðu til álitamála um hvaða börn teljist búa nógu fjarri skólanum sínum til að fá frímiða í strætó. Eins vitum við að notendum strætó er núna mjög ákveðið beint í að greiða fargjöld með símanum sínum. Meirihluti sem vill banna skólabörnum að vera með síma ætlast hins vegar til að sömu krakkar hafi símann á lofti í strætó!

Áhugaverðust er þó aðkoma Framsóknarflokksins að þessu máli, sem skammaði gamla meirihlutann fyrir að miða gjaldfrelsið við grunnskólanema en ekki 18 ára börn. Núna er komið annað hljóð í strokkinn.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: