200 mílur: Rússnesk stjórnvöld segjast vera að íhuga mótaðgerðir eftir að færeyska lögþingið samþykkti ný lög sem veita stjórnvöldum heimild til að banna rússneskum sjávarútvegsfyrirtækjum að starfa í færeyskri lögsögu og nýta færeyskar hafnir. Þetta kemur fram í frétt Reuters.
Var í frétt Kringvarpsins, ríkisfréttamiðils Færeyja, útskýrt að Sirið Stenberg utanríkisráðherra Færeyja gæti þar með sérstaklega skotið loku fyrir veiðar og hafnaaðgang tveggja stórra rússneskra fyrirtækja, Norebo og Murman Seafood.
