Katrín Oddsdóttir skrifaði:

Maðurinn á myndinni er Thordur Thordarson. Myndin er í prófíl hjá þessum ágæta herra enda njóta stífpússaðir lakkskórnir sín vel með mottu og mahóní. Það er stæll á Þórði, sem titlar sig “General manager” hjá félaginu Kaldvík á Facebook síðu sinni.
Kaldvík er félagið sem ætlar sér að troða sjókvíaeldi í Seyðisfjörð þrátt fyrir að meiri hluti bæjarbúa vilji ekki sjá slíka stóriðju í fjörðinn sinn. Undanfarið hafa fréttir af félaginu helst snúist um afkomuviðvaranir og laxadauða en í gær hefur Þórður sennilega skálað með öðrum vel skóuðum herramönnum í tilefni þess að rekstrarleyfi fyrir eldi í Seyðisfirði datt í hús.
Engin barátta
er mikilvægari
að mínu mati.
Á vefsíðu félagsins VÁ – Félag um vernd fjarðar, sem berst fyrir því að vernda Seyðisfjörð birtist í dag hlekkur á frétt á Vísi þar sem formaður félagsins, Benedikta Guðrún Svavarsdóttir, sagði leyfisveitingarnar til eldisins í gær hafa verið mikið áfall. Ég veit að mörg á Seyðisfirði voru gjörsamlega miður sín yfir þessum fréttum í gær.
Undir þessa færslu á síðu félagsins mætir Þórður galvaskur á lakkskónum og skrifar eftirfarandi athugasemd fyrir um tveimur klukkustundum:
„Sama folkið var á móti Norrænu, svo Síldarvinnslunni og skemmtiferðaskipunum. Nú er það fiskeldið. Á sama tíma getur þetta fólk ekki rekið sjoppu og tæp 90% íbúa eru á bótum eða á launum hjá hinu opinbera. Fiskeldið er augljóslega ekki vandamálið.“
Staðreynd: Þetta er sú skoðun sem einn af yfirmönnum félagsins Kaldvíkur hefur á samfélaginu á Seyðisfirði.
Ég legg til að við dveljum í nokkur augnablik við þessa staðreynd og leyfum stóra samhenginu að seytla um taugakerfið okkar.
Að því ferli loknu skulum við svo horfast í augu við þá staðreynd að það er rétt hjá Þórði að það er ekki fiskeldið sjálft sem er vandamálið heldur fólk með afstöðu eins og þá sem hann velur að setja opinberlega fram, og er birtingarmynd fyrir þekkingar- og virðingarleysi gagnvart fólki, samfélagi og náttúrunni.
Eftir að við höfum meðtekið þetta skulum við svo sameinast öll í baráttunni um vernd Seyðisfjarðar, því það er baráttan um vernd einstakrar náttúru Íslands.
Engin barátta er mikilvægari að mínu mati.