- Advertisement -

Fleiri börn með erlenda uppruna á leikskólum

Samfélag Hagstofan hefur frá árinu 2001 skoðað ríkisfang leikskólabarna. Árið 2001 voru 159 börn í leikskólum landsins með erlent ríkisfang, 1,0% leikskólabarna. Tólf árum seinna, í desember 2013, voru börn með erlent ríkisfang 1.147, 5,8% leikskólabarna. Samsetning hópsins hefur breyst töluvert á þessum árum. Börnum frá Eystrasaltslöndunum og Austur-Evrópu hefur fjölgað mikið á meðan börnum frá öðrum heimshlutum hefur fækkað hlutfallslega. Sjá nánar hér.

Starfsfólk í leikskólum á Íslandi hefur aldrei verið fleira en í desember 2013. Þá störfuðu 5.826 manns í 5.099 stöðugildum í 256 leikskólum, 2,8% fleiri en árið áður. Á sama tíma sóttu 19.713 börn leikskóla á Íslandi og hafa aldrei verið fleiri. Leikskólabörnum fjölgaði um 98 frá desember 2012, eða um 0,5%. Rúmlega 83% barna á aldrinum 1-5 ára voru skráð í leikskóla og hefur það hlutfall ekki verið hærra.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: