Þrælsótti er hreint ömurlegur. Sjálfur hef ég tekið viðtal við yfirmann á fínu aflaskipi. Hann hafði kjark til að segja frá ofríki útgerðarinnar í hans heimabæ. Sagði fólk almennt ekki þora að æmta né skræmta.
Fáum dögum síðar hringdi maðurinn til mín og baðst undan birtinu viðtalsins. Sagðist viss um að hann myndi missa vinnuna ef útgerðin læsi meiningu hans. Ég var eðlilega ósáttur. Spurpi hvort þrælsóttinn væri svona mikill og svona sterkur. Hann játti því.
Þetta rifjaðist upp fyrir mér þegar sagt var í fréttum sjónvarps að fólk sem býr í sjávarbyggðum vildu ekki tjá sig um veiðigjaldamálið sem nú er uppi. Dæmi eru til um að mönnum hafi verið sagt upp á einu skipi, hjá einni útgerð, en uppsagagnirnar hafi náð til alls flotans.
Þess vegna á fólk erfitt með að tjá sig.