- Advertisement -

Forseti Íslands heimsækir Færeyjar

Birgir Dýrfjörð skrifar af tilefni heimsóknar forsetahjónanna til Færeyja, sem hefst á morgun.

Þegar Íslendingar voru að berjast fyrir landhelgi sinni áttu þeir aðeins einn vin.

Þá skrifaði ég langa grein til að þakka einu þjóðinni sem hjálpaði okkur í þeim örlaga slag.

Í tilefni af heimsókn forseta Íslands til Færeyja birti ég hér bút úr þeirri grein.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Í fyrsta þoskstríðin 1959 (stækkun í 12 mílur) neituðu Færeyingar að veita þjónustu breskum togurum, sem stunduðu landhelgisbrot við Ísland. Sú þjónusta var Bretum afar dýrmæt, Vatn – Olía – viðgerðir. Í okkar þágu neituðu Færeyingar þá sjálfum sér um dágóðar tekjur.

Næsti áfangi í landhelgismálum okkar var útfærsla hennar í 50 mílur. Þá fengum við hvergi stuðning nema frá Kína og Finnlandi og þá bara í orði. Færeyingar einir studdu okkur þá á borði jafnt og í orði þeir stóðu fyrir okkar hönd í ærnum átökum við Bretana.

Þegar frá því var sagt í útvarpi að Færeyingar hafi átt í átökum til að reka breska togara frá höfninni í Þórshöfn og fengu fyrir það hótanir um refsiaðgerðir frá bresku stjórninni. Þá vissu allir að okkur til hjálpar settu Færeyingar eigin hagsmuni í hættu. Þá þráðu íslendingar að geta launað þeim vináttuna á verðugan hátt.  

Atli Dam fyrrverandi lögmaður Færeyja og Ólafur Jóhannesson fyrrverandi forsætisráðherra Íslands.

Þá sendi forsætisráðherra Íslands, Ólafur Jóhannesson, Atla Dam lögmanni Færeyinga einlægt þakkarávarp. Öll íslenska þjóðin tók af heilum hug undir þakkarávarp hans.

Þegar við færðum landhelgi okkar í 200 mílur urðu viðbrögð öll hin sömu. Færeyingarnir slógust með okkur við Bretana, sem þá höfðu lært af reynslunni. Þeir hótuðu þá Færeyingum löndunarbanni á færeyskan fisk ef þeir héldu áfram að loka höfnum sínum til að styðja Íslendinga.

Það hefði orðið rothögg fyrir færeyskan efnahag.

Þá gerðist það, sem sannar samkennd og vináttu Færeyinga. Þegar stjórnvöld máttu ekkert aðhafast þá greip almenningur til sinna ráða. Það var sýnt í sjónvarpinu þegar færeyskar konur kræktu saman olnbogum utan um bryggjupolana og komu þannig í veg fyrir að breskir togarar næðu nauðsynlegum landfestum til að taka olíu og vatn og þeir urðu frá að hverfa.

Það var líka sagt frá í fréttum, að færeyskir iðnaðarmenn neituðu sem einstaklingar að að fara um borð í breska togara þó háar greiðslur væru í boði. Þeir sviku ekki vini sína fyrir peninga.

Foringi iðnaðarmanna var þá bróðir Gríms Eysturoy kafara, þess er vann það fræga þrekvirki að sækja olíuna aleinn niður í El Grillo í Seyðisfirði.

Einstök vináatta

Daginn eftir að eldgosið féll yfir Vestmannaeyjar var sagt frá í hádegisfréttum útvarpsins að fjöldi Færeyinga hefðu komið með peninga í banka, bæjarskrifstofur og pósthús til að biðja um aðstoð við að koma þeim til Íslands. Þetta örsnögga viðbragð Færeyinga var ekki svar við hjálparbeiðni engin slík hafði verið send. Þetta var sjálfvakin hjálp Færeyinga við vini í nauð.

Tuttugu og þrjú félög og fyrirtæki mynduðu þá samtök til hjálpar Vestmannaeyingum. Þau unnu það afrek að heimsækja öll heimili í Færeyjum og öll gáfu þau fé. Enginn vildi vera án þess.

Aur fátæku ekkjunnar var þar gefinn af sömu velvild og fúlgur fyrirtækja.

Takk forseti minn að sýna færeysku þjóðinni sóma með opinberri heimsókn.

Það er margt fallegt í Færeyjum. Ekki síst gömlu bátarnir þeirra.
Hér er mynd af Norðurljósinu frá Þórshöfn.

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: