- Advertisement -

Fullveldið sem verið er að verja er ekki fullveldi þjóðarinnar yfir auðlindinni

Því fullveldið sem verið er að verja er ekki fullveldi þjóðarinnar yfir auðlindinni. Það er fullveldið til að hafa engan dómara á vellinum.

Þórólfur Júlían Dagsson skrifaði:

Í þrjátíu ár hef ég heyrt að ESB ætli að taka fiskinn okkar.

Svo ég ákvað að prófa. Ég sendi Eftirlitsstofnun EFTA erindi um íslenskan sjávarútveg — samþjöppun, lóðrétta samþættingu, innri verðlagningu, Kýpur, allt heila klabbið. Ég var sem sagt að bjóða þeim fiskinn. Gjörið svo vel.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Svarið kom í vikunni:

„Fish is a product which generally falls outside the product scope of the EEA Agreement.“ „Fiskur er vara sem almennt fellur utan gildissviðs EES-samningsins.“

Fjórar tilvísanir í alþjóðasamninga og einn dómur EFTA-dómstólsins, allt til þess eins að segja: ekki okkar deild.

Valdið liggur, segja þeir, hjá samningsaðilunum sjálfum. Sem sagt hjá íslenska ríkinu. Kötturinn býðst góðfúslega til að gæta rjómans.

Og erindið mitt? Það verður skráð sem „market information“. Ekki kvörtun. Ekki mál. Markaðsupplýsingar. Ofan í skúffu í Brussel, á milli veðurskeytis frá Noregi og verðlista á makríl.

Svo hér erum við: ESB má ráða því hversu mörg vött eru í ryksugunni minni, hvernig ég meðhöndla persónuupplýsingar í trilluhópi á Facebook og hvað stendur á skyrdósinni.

En ekki hver á fiskinn.

Það er ekki galli í samningnum. Það er dýrmætasta ákvæði íslenskrar hagsögu, og það útskýrir af hverju sömu aðilar og græða mest á því eru háværastir um fullveldið.

Því fullveldið sem verið er að verja er ekki fullveldi þjóðarinnar yfir auðlindinni. Það er fullveldið til að hafa engan dómara á vellinum.

Ég bauð þeim fiskinn með báðum höndum. Þeir nenntu því ekki.

Já á laugardaginn.

Heimildir:

  • Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið, lög nr. 2/1993 — 8. gr., 20. gr., 61.–64. gr.
  • Bókun 2 og bókun 9 við EES-samninginn (viðskipti með fisk og aðrar sjávarafurðir)
  • EFTA-dómstóllinn, mál E-12/16, Marine Harvest
  • Svar Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) við erindi um íslenskan sjávarútveg, ágúst 2026
  • Tilskipun 2001/113/EB um sultu og hlaup (gulrót skilgreind sem ávöxtur)

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: