- Advertisement -

Grimmustu stofnanir valdsins eiga ekki roð við baráttu láglaunafólks

„Í enn eitt skiptið hefur Eflingarfólk í minnst metnu störfum samfélagsins sýnt að jafnvel grimmustu stofnanir valdsins eiga ekki roð við þeim þegar þau koma fram baráttuglöð og sameinuð. Í enn eitt skiptið hafa þau sannað að réttlát og staðföst barátta láglaunafólks í gegnum sitt stéttarfélag er ekki bara réttur okkar heldur skilar hún líka raunverulegum árangri,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.

Efling fagnarn ú sigri í langvinnri og erfiðri kjarabaráttu við Samband íslenskra sveitarfélaga fyrir hönd félagsmanna sem starfa hjá Kópavogsbæ, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Sveitarfélaginu Ölfusi og Hveragerðisbæ.

„Ég vil líka benda á hversu mikilvæg skilaboð félagsmenn okkar senda inn í samfélagsástandið með þessum árangri. Ef einhver hélt að kórónaveirufaraldurinn og efnahagslægðin sem honum fylgir yrði átylla til að skerða kjör láglaunafólks og berja niður í þeim baráttuandann, þá hafa félagsmenn okkar hjá sveitarfélögunum sýnt að það er ansi stór misskilningur. Baráttan fyrir réttlátu samfélagi er lifandi og hefur aldrei skipt meira máli en einmitt núna,“ sagði Sólveig Anna Jónsdóttir.

Með aukagreiðslu náðist fram sambærileg kjarabót og í samningum félagsins við ríkið, Reykjavíkurborg og Faxaflóahafnir. Þessar kjarabætur fyrir láglaunafólk hjá sveitarfélögunum, að stórum hluta konur í umönnunarstörfum, er beinn árangur af verkfallsaðgerðum og staðfastri baráttu félagsmanna á Höfuðborgarsvæðinu öllu síðan í byrjun febrúar.

Baráttan fyrir réttlátu samfélagi er lifandi og hefur aldrei skipt meira máli en einmitt núna.

Önnur meginatriði samningsins eru samtals 90 þúsund króna hækkun grunnlauna í grunnþrepi yfir samningstímann, stytting vinnuvikunnar, 61 þúsund króna árlegt framlag í nýjan félagsmannasjóð og fleira.

Kjaradeila Eflingar við sveitarfélögin fór fram undir afar óvenjulegum kringumstæðum, en ólíkt ríkinu og Reykjavíkurborg skirrðist Samband íslenskra sveitarfélaga við að ljúka samningum við Eflingu áður en kórónaveirufaraldurinn náði hámarki í marsmánuði. Frekar en að láta undan tók samninganefnd félagsmanna ákvörðun um tímabundna frestun verkfalls. Verkfalli sem hófst 9. mars og hafði verið samþykkt með 90% greiddra atkvæða og tæplega helmings þátttöku var því frestað þann 24. mars.

Eftir páska gengu félagsmenn í annað sinn til atkvæðagreiðslu um verkfall. Þátttaka í atkvæðagreiðslunni var mun meiri en í fyrri atkvæðagreiðslu eða 65% félagsmanna og samþykktu tæp 90% þeirra verkfallsboðunina. Verkfall hófst þriðjudaginn 5. maí og skapaðist með því mikill þrýstingur á sveitarfélögin, ekki síst vegna lokana í grunnskólum.

Samningur er undirritaður með fyrirvara um samþykki þeirra 270 félagsmanna sem undir honum munu starfa. Hefst nú vinna við kynningu samningsins og undirbúning atkvæðagreiðslu.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: