- Advertisement -

Guðmundur Steingrímsson: Sigmundur Davíð er botnari

Alþingi „Ef Kári Stefánsson er toppari finnst mér löngu tímabært að segja að hæstvirtur forsætisráðherra er botnari. Hann finnur sífellt lægra plan til að fara á með umræðuna.“

Þetta sagði Guðmundur Steingrímsson á Alþingi í dag.

Tilefnið var svargrein forsætisráðherra í Fréttablaðinu í dag,við grein Kára Stefánssonar í sama blaði í gær.

Ég er sammála Kára

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Það virðist vera hlaupinn einhver ótrúlega undarlegur skætingur í umræðuna um heilbrigðismál hér á landi. Hæstvirtur forsætisráðherra hefur tekið forustuna í þeim efnum í samkeppni við mjög marga aðra sigurstranglega leikmenn með nýrri grein í Fréttablaðinu í morgun þar sem hann gerir því skóna að ákveðinn læknir í samfélaginu, Kári Stefánsson, sé toppari. Kári skrifaði gagnmerka og skorinorta grein um að það væri þjóðarskömm hvernig við höguðum framlögum til heilbrigðismála hér á landi. Ég er sammála honum um það. Það er skömm að því.“

Lægri framlög til spítalans

Það er eitt sem hæstvirtur forsætisráðherra má ekki komast upp með síendurtekið og það er það, þótt ekki væri annað, að fullyrða að framlög til spítalans hafi aldrei verið meiri. Hæstvirtur forsætisráðherra virðist vera að tala um það án þess að taka tillit til verðlags. Auðvitað eigum við að tala um framlög til spítalans á föstu verðlagi. Staðreyndin er einfaldlega sú að framlög til spítalans í ár eru sjö prósentum lægri á föstu verðlagi en þegar þau voru mest, árið 2008.“

Aðeins Mexikó neðar en við

„Við getum skoðað alls konar aðrar tölur í þessu efni. Sem hlutfall af heildarútgjöldum ríkissjóðs eru framlög til spítalans 22 prósentum lægri en þau voru 2003. Spítalinn hefur einfaldlega búið við langvarandi niðurskurð í rekstri.  Og sem hlutfall af þjóðarframleiðslu erum við með mun lægri útgjöld til spítalans eða til heilbrigðismála almennt heldur en í Skandinavíu. Og í fjárfestingum í innviðum í heilbrigðisþjónustu erum við næstlægst af OECD-ríkjum, aðeins Mexíkó er lægra en við. Auðvitað er skömm að því. Auðvitað eigum við að geta talað um þessar tölur án þess að vera í einhverjum skætingi. Ef Kári Stefánsson er toppari finnst mér löngu tímabært að segja að hæstvirtum forsætisráðherra er botnari. Hann finnur sífellt lægra plan til að fara á með umræðuna.“

Ófriður var í þingsalnum er Guðmundur flutti ræðu sína.

Fyrir þau sem vilja er hægt að hlusta hér.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: