Guðrún Hafsteinsdóttir, form. Sjálfstæðisflokksins, er tekin á beinið nú í morgunasárið vegna orða hennar í sjónvarpsþætti gærkvöldsins. Efast er um söguþekkingu hennar. Þau eru nokkur sem efast um þekkingu Guðrúnar.
Karen Kjartansdóttir:
„Af hverju eru systurflokkar okkar á Norðurlöndunum, bæði í Svíþjóð, Noregi og Danmörku, hlynntir inngöngu í Evrópusambandið? Við því er ákveðið svar og fólk þarf að þekkja söguna.
Við eigum allt aðra sögu. Systurflokkar okkar á Norðurlöndunum þurftu ekki að berjast fyrir sjálfstæði sínu. Þeir þurftu ekki að taka þá slagi sem stjórnmálamenn fyrri tíma og stjórnmálamenn Sjálfstæðisflokksins gerðu.“
Þetta segir formaður Sjálfstæðisflokksins, sem er hin prýðilegasta kona en. Sko.
Norski Høyre var stofnaður árið 1884, þegar Noregur var enn í ríkjasambandi við Svíþjóð. Flokkurinn var því orðinn 21 árs þegar Norðmenn öðluðust fullt sjálfstæði árið 1905. Noregur var síðar hernuminn af Þjóðverjum eftir vopnaða mótspyrnu og Norðmenn börðust gegn hernáminu í fimm ár.
Danmörk var einnig hernumin af Þjóðverjum og þar starfaði öflug andspyrnuhreyfing. Finnland var öldum saman undir Svíþjóð og síðan Rússlandi, háði blóðuga borgarastyrjöld eftir sjálfstæðið og barðist gegn innrás Sovétríkjanna. Sjálfstæði Svíþjóðar varð heldur ekki til án uppreisnar og styrjalda.
Sjálfstæðisflokkurinn var hins vegar stofnaður árið 1929, ellefu árum eftir að Ísland varð fullvalda ríki með samningi við Dani. Íslendingar háðu friðsamlega stjórnmálabaráttu og stofnuðu síðan lýðveldi árið 1944 meðan Danmörk var hernumin af nasistum.
Af sjálfstæðu Norðurlandaþjóðunum hafa Íslendingar líklega þurft að berjast minnst og færa minnstar fórnir fyrir sjálfstæði sitt.
Það þarf því nokkuð séríslenska söguskoðun til að breyta friðsamlegum sambandsslitum okkar við Dani í mestu sjálfstæðisbaráttu Norðurlanda og komast síðan að þeirri niðurstöðu að systurflokkar Sjálfstæðisflokksins séu hlynntir Evrópusambandinu vegna þess að þeir skilji ekki hvað sjálfstæði kostar.
Óðinn Jónsson: Það var ægilegt fyrir sagnfræðing að hlusta á þetta óupplýsta og kjánalega þvaður í formanni Sjálfstæðisflokksins og þá vanvirðingu sem hún sýndi norrænum systurflokkum. Þetta á erindi út fyrir landsteina, segir gamall fréttamaður. Takk fyrir að taka þetta saman, Karen.
Grímur Atlason: Þetta var ægilegt.
Sólveig Arnardóttir: Þetta var einn af hápunktum kvöldsins. Á pari við orð Sólveigu Önnu um að hún væri “eini talsmaður friðar og diplomasíu við borðið” (ég hló upphátt) og svipinn á Halldóri Benjamín þegar SA talaði krítískt um ónýtan leigumarkað en láðist að beina orðum sínum að honum sem var að koma af hálfsársuppgjörsfundi Heima sem hagnaðist um 4.7 milljarða fyrstu 6.mán ársins. Ekki síst vegna vaxta- og verðbólgu. Þarna var ég samt alveg hætt að flissa…
Illugi Jökulsson: Þetta var skammarlegt og ekkert annað.
Trausti Jónsson: Þetta er auðvitað bara nákvæmlega sama „mantra“ og ég er búinn að hlusta á frá því að ég man eftir mér (um 1960) – hefur reynst flokknum mjög vel í áranna rás – og allir flokksmenn endurtaka eftir þörfum. Hluti trúarjátningarinnar, sem slík sönn alveg sama hvað svokallaðar staðreyndir segja annað. Að hætta þessu er jafnfráleitt og fyrir kaþólsku kirkjuna að fara að efast um meyfæðinguna – hún er sönn. Hrun flokksins blasir við sé trúarjátningunni breytt.
Mun fleiri hafa tjáð sig á svipaðan hátt.