Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir skrifaði:
„Ég gef ekkert fyrir orð þessa starfsmanns ESB,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson fv. utanríkisráðherra um Ursulu von der Layen forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í samtali við mbl.is. Hann er þarna að tala um æðsta embættismann Evrópusambandsins sem kosinn er til sinna starfa af Evrópuþinginu – en það er skipað 720 þingmönnum sem kosnir eru beint af borgurum Evrópusambandsins.
„Gunnar Bragi má mín vegna vera ESB andstæðingur – sem hann vissulega er – en að fyrrverandi utanríkisráðherra lýðræðisríkis skuli leyfa sér að tala með þessum hætti um leiðtoga Evrópuríkja, sem hingað kemur í opinbera heimsókn, ber ekki aðeins vitni um vandræðalega vanþekkingu á stöðu og hlutverki Von der Layen, heldur líka óþægilega (og í ljósi fyrra hlutvers GBS sem utanríkisráðherra, ósæmandi) karlrembu, sem illt er að finna í fari ráðamanna, þótt fyrrverandi séu.“