- Advertisement -

Hagræn áhrif ritlistar

Dr. Ágúst Einarsson flytur erindi um niðurstöður rannsókna sinna á íslenskum bókamarkaði í Norræna húsinu, laugardaginn 8. október kl. 11. Niðurstöður þessar eru birtar í nýútkominni bók hans, Hagræn áhrif ritlistar.

Í skrifum sínum leggur Ágúst fram 10 stefnumarkandi aðgerðir til að efla ritlist hérlendis. Þar nefnir hann meðal annars tillögu sína um niðurfellingu virðisaukaskatts á bækur, tímarit og blöð frá ársbyrjun 2016. Einnig aukin framlög til Bókasafnssjóðs og bókasafna, langtímaáætlun um eflingu lesskilnings og hvernig efla megi námsbókaútgáfu á íslensku.

Umræður verða í lok erindis. Boðið verður upp á léttar kaffiveitingar fyrir fundinn frá kl. 10:30.

Sjá á Bókmenntavefnum.

 

 

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: